Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Suður-Kórea hafði betur gegn Tékklandi

Read Full Article →

Suður-Kóreumenn unnu 2-1 sigur á Tékkum í fyrsta leik liðanna á HM í knattspyrnu. Liðin mættust á hálffullum Guadalajara-leikvanginum í Mexíkó í nótt. Það var lítið um færi í fyrri hálfleik sem var öllu rólegri en sá síðari. Fyrsta mark leiksins skoraði Tékkinn Ladislav Krejčí á 59. mínútu. Krejčí skallaði boltann í mark eftir langt innkast. Hwang In-beom jafnaði metin fyrir Suður-Kóreu á 67. mínútu. Sigurmarkið kom svo á 80. mínútu þegar varamaðurinn Oh Hyeon-gyu kom boltanum í netið fyrir Suður-Kóreu eftir stoðsendingu frá Hwang. Skömmu áður hafði Tomáš Souček skorað fyrir Tékka en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Leikurinn í kvöld var annar leikur mótsins og jafnframt annar leikurinn í A-riðli. Í gærkvöldi mættust lið Mexíkó og Suður-Afríku. Þeim leik lauk með 2-0 sigri Mexíkóa. Næstu leikir riðilsins verða 18. júní. Þá leikur Suður-Kórea gegn Mexíkó og Tékkland mætir Suður-Afríku. Næsti leikur á HM er svo viðureign Kanada og Bosníu klukkan 19. Hann er sýndur beint á RÚV 2.

Share this article