Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Suður-Afríkumenn komnir upp úr riðlakeppninni í fyrsta sinn

Read Full Article →

Suður-Afríka er komið í útsláttarkeppnina á HM í fótbolta í fyrsta sinn. Liðið mætti Suður-Kóreu í lokaumferð A-riðils í nótt. Það verður seint sagt að leikurinn hafi verið tíðindamikill. Staðan var enn 0-0 í hálfleik. Suður-Afríkumenn voru þó sýnilega betra liðið í leiknum og verðskulduðu þennan 1-0 sigur. Thapelo Maseko skoraði eina mark leiksins á 63. mínútu. Tveir leikmenn skoruðu sín fyrstu landsliðsmörk fyrir Mexíkó Mexíkóar voru búnir að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni fyrir leik sinn gegn Tékkum í nótt. Líkt og í hinum leik næturinnar gengu liðin til búningsklefa í hálfleik án þess að hafa skorað mark. Seinni hálfleikur var öllu tíðindameiri. Mateo Chávez skoraði fyrsta mark Mexíkóa í leiknum, og sitt fyrsta landsliðsmark á ferlinum, á 55. mínútu. Á 61. mínútu bætti Julián Quiñones við öðru marki fyrir Mexíkóa. Álvaro Fidalgo gulltryggði svo sigur Mexíkóa í uppbótartíma. Líkt og hjá Chávez var þetta fyrsta landsliðsmark Fidalgo. Mexíkó fer því upp úr riðlinum með fullt hús stiga. Suður-Afríka náði sér í annað sæti riðilsins með sigrinum í nótt. Liðið er því sem áður segir komið upp úr riðlakeppni á HM í fyrsta sinn. Liðsmenn Suður-Kóreu þurfa að bíða eftir úrslitum úr öðrum riðlum til að komast að því hvort þeir komist upp úr riðlinum. Af liðunum sem enda í þriðja sæti í sínum riðli komast þau átta sem náðu bestum árangri áfram í útsláttarkeppnina.

Share this article