Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 12.6.2026 | 10:21 | Uppfært 13:18 Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Þetta er annað árið í röð sem Hafrannsóknastofnun leggur til að aflamark í þorski verði skert. Ljósmynd/Sjávarlíf: Erlendur Bogason Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Hafrannsóknastofnun leggur til að hámarksaflamark í þorski fyrir næsta fiskveiðiár verði ekki meira en 201.674 tonn. Það er 1% lækkun frá yfirstandandi fiskveiðiári. Þetta kom fram á kynningarfundi stofnunarinnar um ráðgjöf næsta fiskveiðiárs sem hefst 1. september. Þetta er annað árið í röð sem Hafrannsóknastofnun mælist til þess að þorskkvóti lækki en fyrir fiskveiðiárið 2025/2026 nam skerðingin 4%. Fiskveiðiárið þar á undan hljóðaði ráðgjöfin upp á 1% aukningu en þá kom jafnframt fram að stofnunin byggist við samdrætti á næstu árum. Ljóst er að þær spár hafa raungerst. Frétt af mbl.is Ráðleggja 4% lægra aflamark þorsks Í kynningu Hafrannsóknastofnunar kom fram að ekki sé gert ráð fyrir því að heildarafli þorsks muni aukast á næstu árum en þó er tekið fram að líklega muni hann ekki lækka mikið heldur. Árgangar áranna 2021 og 2022 eru þó sagðir vera með þeim minnstu í átta ár. Þá eru meðalþyngdir 4 til 8 ára þorsks í vorralli nú með því lægsta sem hefur mælst. Minna hefur sést af loðnu í þorskmögum í vorralli undanfarin 3 ár. Á sama tíma hefur fjöldi nýliða loðnu, mældur að hausti árið áður, verið lítill. Telur stofnunin því að hluti lækkunar í þorski sé tilkominn vegna minna magsn loðnu undanfarin þrjú ár. 20% lækkun í ýsu og 16% í ufsa Ýsan fer bratt niður en Hafrannsóknastofnun legur til að ekki verði veitt meira en 63. 206 af ýsu. Það er 20% lækkun frá núverandi fiskveiðiári og mikil breyting frá síðasta ári en í ráðgjöf stofnunarinnar árið 2025 hækkaði ráðgjöf í ýsu um 3% Greint er frá því að lækkunin sé til komin vegna þess að stærð viðmiðunarstofnsins, sem nær til ýsu sem er 45 sentimetrar og stærri, hefur minnkað frá því að hann náði hámarki árið 2024. Minni nýliðun var árin 2022-2024. Ekki er búist við því að stofninn stækki á næsta ári en von sé til þess að árgangurinn 2025 sé tiltölulega stór. Ufsi lækkar um 16% frá yfirstandandi fiskveiðiári og ráðgjöf miðar við leyfilegan heildarafla upp á 49.887 tonn. Ráðgjöf í gullkarfa hækkar hins vegar um 5%. 81% hækkun í loðnu en lækkun í sumargotssíld Athygli vekur að loðnuráðgjöf hækkar verulega, eða um 81%. Er lagt til að aflamark verði 358.044 tonn. Ráðgjöfin verður uppfærð fyrir næstu vertíð þegar haustmæling stofnunarinnar hefur farið fram. Aflamark íslensku sumargotssíldarinnar lækkar aftur á móti um 22% og hljóðar ráðgjöf upp á 80.307 tonn. Ekki er búist við að stofnstærð muni breytast mikið á næsta ári en ákveðin óvissa er í stofnmati, meðal annars vegna vandkvæða við bergmálsmælingar. Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um fleiri stofna en þorsk og ýsu. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Strandveiðimenn bíða í óvissu Loðnuráðgjöf hækkar um 81% 66°Norður litu til upprunans Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Brim segir upp 20 starfsmönnum Þungt andrúmsloft á Vopnafirði „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa 66°Norður litu til upprunans Strandveiðimenn bíða í óvissu Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Brim segir upp 20 starfsmönnum Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Hafna hugmyndum um undanþágur Lögfræðingar fara yfir hvalveiðilög „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Myndir: Látinna sjómanna minnst Hafna hugmyndum um undanþágur Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Brim segir upp 20 starfsmönnum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Sjómenn heiðraðir um allt land Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Fleira áhugavert Hagræðingarhópur kynntur „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.6.26 682,99 kr/kg Þorskur, slægður 12.6.26 831,90 kr/kg Ýsa, óslægð 12.6.26 662,78 kr/kg Ýsa, slægð 12.6.26 532,35 kr/kg Ufsi, óslægður 12.6.26 350,67 kr/kg Ufsi, slægður 12.6.26 417,17 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 12.6.26 457,23 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.6.26 Gullhólmi SH 201 Lína Keila 641 kg Samtals 641 kg 12.6.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 145 kg Ýsa 16 kg Ufsi 15 kg Langa 5 kg Karfi 4 kg Samtals 185 kg 12.6.26 Magnús SH 205 Dragnót Þorskur 399 kg Steinbítur 84 kg Langlúra 72 kg Skrápflúra 63 kg Ufsi 58 kg Karfi 16 kg Skarkoli 2 kg Þykkvalúra 1 kg Samtals 695 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Skerða um 1% í þorski og 20% í ýsu Hrikaleg vonbrigði með ýsuna Strandveiðimenn bíða í óvissu Loðnuráðgjöf hækkar um 81% 66°Norður litu til upprunans Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Brim segir upp 20 starfsmönnum Þungt andrúmsloft á Vopnafirði „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa 66°Norður litu til upprunans Strandveiðimenn bíða í óvissu Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Brim segir upp 20 starfsmönnum Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Marx nýr yfirvísindamaður Rastar Hafna hugmyndum um undanþágur Lögfræðingar fara yfir hvalveiðilög „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Myndir: Látinna sjómanna minnst Hafna hugmyndum um undanþágur Þungt andrúmsloft á Vopnafirði Hákarlamarkaðurinn smám saman að hverfa Brim segir upp 20 starfsmönnum „Mikill auður safnast á fárra hendur“ Minnisvarði afhjúpaður á sjómannadaginn Vara við tínslu kræklings úr fjörum Sjómenn heiðraðir um allt land Viðbrögð Faxaflóahafna komu á óvart „Sjómenn eru ekki alveg sáttir“ Fleira áhugavert „Elskuð, virt og dáð af fólki um allt konungsríkið“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Þrengdi að hálsi fyrrum sambýliskonu sinnar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 12.6.26 682,99 kr/kg Þorskur, slægður 12.6.26 831,90 kr/kg Ýsa, óslægð 12.6.26 662,78 kr/kg Ýsa, slægð 12.6.26 532,35 kr/kg Ufsi, óslægður 12.6.26 350,67 kr/kg Ufsi, slægður 12.6.26 417,17 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 12.6.26 457,23 kr/kg Litli karfi 1.6.26 25,00 kr/kg Blálanga, óslægð 4.6.26 388,23 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 12.6.26 Gullhólmi SH 201 Lína Keila 641 kg Samtals 641 kg 12.6.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 145 kg Ýsa 16 kg Ufsi 15 kg Langa 5 kg Karfi 4 kg Samtals 185 kg 12.6.26 Magnús SH 205 Dragnót Þorskur 399 kg Steinbítur 84 kg Langlúra 72 kg Skrápflúra 63 kg Ufsi 58 kg Karfi 16 kg Skarkoli 2 kg Þykkvalúra 1 kg Samtals 695 kg Skoða allar landanir »

Share this article