Landssamband smábátaeigenda, LS, hefur ritað Hönnu Katrínu Friðriksson bréf þar sem farið er fram á að ráðherra heimili 213.413 tonna afla í þorski á meðan ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar hljóðar upp á 201.674 tonn. Krafa Landssambandsins byggir á meintri skekkju í útreikningum Hafrannsóknastofnunar sem hafi leitt til vanmats á veiðistofni þorsks. Svo áratugum skiptir hefur ráðherra sem fer með sjávarútvegsmál farið í einu og öllu eftir ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar þegar veiðiheimildir eru ákvarðaðar. Í greinargerð með tillögu LS segir að samkvæmt skýrslu Hafrannsóknastofnunar frá 12. júní síðastliðnum sé veiðistofn þorsks ársins 2025 metinn 1.050 þúsund tonn. Við ákvörðun fyrir yfirstandandi fiskveiðiár, 2025/2026, hafi hins vegar verið miðað við að hann væri 972 þúsund tonn. „Vegna þessa vanmats á stærð stofnsins telur LS óhjákvæmilegt að ráðgjöf frá síðasta ári verði endurreiknuð og mismuninum bætt við útkomu þessa árs. Útreikningar taka til beggja gilda sem notuð eru í aflareglu; veiðistofns og útgefins aflamarks á yfirstandandi fiskveiðiári.“ LS telur enn fremur að vanmat á stærð stofnsins hafi haft áhrif á heildarafla á yfirstandandi fiskveiðiári. Samkvæmt endurskoðaðri stærð veiðistofnsins hefði heildaraflinn átt að vera 211.647 tonn, eða 7.826 tonnum hærri en útgefið var. „LS lítur svo á að sá afli eigi að bætast við framkominn útreikning á leyfilegum heildarafla á fiskveiðiárinu 2026/2027, hann verði 213.413 tonn.“ Þarna muni því alls 11.738 tonnum sem LS telur að, í ljósi þorskverðs sem er í hæstu hæðum, myndi skila milljarða aukningu í afla- og útflutningsverðmætum. LS átti fund með sérfræðingum Hafrannsóknastofnunar og fékk þar skýringar á forsendum ráðgjafar stofnunarinnar fyrir næsta fiskveiðiár. Að loknum þeim fundi sendi félagið atvinnuvegaráðherra bréf þar sem hann er hvattur til þess að fallast ekki á tillögur Hafró um heildarafla í þorski, ýsu og ufsa. LS óskar þess einnig að aflétt verði banni við hirðingu á lúðu sem veiðist sem meðafli í línuveiðum. Tillögur LS til ráðherra í ljósi þessa eru að á næsta fiskveiðiári, sem hefst 1. september næstkomandi, verði heimilaðar veiðar á 213.413 tonnum af þorski (ráðgjöf Hafró 201.674 tonn), 71.000 af ýsu (ráðgjöf Hafró 63.206 tonn), 59.000 tonnum af ufsa (ráðgjöf Hafró 49.887 tonn) og 7.657 tonnum af löngu og 9.018 tonnum af keilu sem hvort tveggja er samkvæmt ráðgjöf Hafró.