Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

„Tveir trúðar með míkrófón mega vera til í friði“

  • What: Proposed changes to media laws may reduce obligations for broadcasters.
  • Impact: Could affect media regulation and content standards.
Read Full Article →

Ólöf Skaftadóttir, annar stjórn­enda hlað­varpsins Komið gott, fagnar fyrir­huguðum breytingum á lögum um fjölmiðla sem miða að því að hefðbundin hlaðvörp verði ekki lengur skráningar­skyld sem fjölmiðlar. „Við dýrkum Loga. Maður sem skilur að tveir trúðar með míkrófón mega vera til í friði frá reglu­setningu óþar­frar nefndar og hótunum um dag­sektir. Ég mun samt sakna þess að opna einn Lite og standa í bréfa­skriftum við þennan mann­skap en ég held að ég finni leið til að jafna mig á því,“ segir Ólöf í sam­tali við Við­skipta­blaðið. Vísir greindi frá því í dag að vinna væri hafin innan menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðu­neytisins við breytingar á lögum um fjölmiðla. Ein helsta breytingin sem ráðu­neytið horfir til er að hefðbundin hlaðvörp verði ekki lengur skráningar­skyld sem fjölmiðlar. Málið hefur vakið tals­verða at­hygli að undan­förnu eftir að Fjölmiðla­nefnd gerði kröfu um að hlaðvörp yrðu skráð sem fjölmiðlar. Stjórn­endur hlað­varpa hafa gagn­rýnt þá túlkun harð­lega og bent á að kröfurnar leggi óþarfa stjórnsýslu­byrði á sjálf­stæða þátta­stjórn­endur og smærri efnis­fram­leiðendur. Í um­fjöllun Vísis kemur fram að ráðu­neytið hafi á undan­förnum mánuðum unnið að breytingum sem ætlað sé að styrkja ís­lenskt fjölmiðla­um­hverfi. Næsta skref sé að endur­skoða lög um fjölmiðla, meðal annars með það fyrir augum að skerpa laga­lega skil­greiningu á því hvað teljist fjölmiðill. Stefnt er að því að kynna laga­breytingar þess efnis á næsta þing­vetri. Sam­kvæmt svari ráðu­neytisins til Vísis verður nánari út­færsla kynnt þegar frum­varpið fer í samráð. Út­gangs­punkturinn sé þó sá að hefðbundin hlaðvörp, eins og þau þekkjast í dag, verði ekki skráningar­skyld. Þrátt fyrir það munu ýmsar reglur áfram gilda um hlaðvörp líkt og annars konar miðlun á efni, til dæmis reglur um vernd barna og aug­lýsingar. Sam­hliða þessu er einnig til skoðunar að ein­falda stjórnsýslu og eftir­lit á sviði fjölmiðlunar og fjar­skipta. Í svari ráðu­neytisins kemur fram að sú vinna sé hafin, en krefjist laga­breytinga og sam­starfs milli ráðu­neyta. Þar er meðal annars horft til til­lagna hag­ræðingar­hóps ríkis­stjórnarinnar um sam­einingu stofnana. Nánari út­færsla verður kynnt þegar tengd frum­vörp fara í samráð, en stefnt er að því að ljúka þeirri vinnu á kjörtíma­bilinu.

Share this article