Geimfyrirtækið SpaceX lauk í gær 75 milljarða dala hlutafjárútboði, stærsta frumútboði sögunnar, í aðdraganda skráningar á Nadaq hlutabréfamarkaðinn í Bandaríkjunum. Útboðsgengið nam 135 dölum á hlut. Markaðsaðilar bíða nú spenntir eftir að opnað verði fyrir viðskipti með bréf félagsins. Heimildarmaður WSJ segir útlit fyrir að gengið verði í kringum 170-175 dalir á hlut þegar viðskipti með bréf félagsins hefjast. Viðskipti með bréf SpaceX hófust ekki við opnun markaðarins heldur byrjaði Nasdaq að taka við kaup- og sölutilboðum í svokölluðum tilboðsglugga (e. quotation window), klukkan 13:50 á íslenskum tíma. Í umfjöllun WSJ segir að oft sé ekki opnað fyrir fyrstu viðskipti á markaði fyrr en eftir kl. 16 á íslenskum tíma. Bent er á að þegar örgjörvaframleiðandinn Cerebras fór á markað í maí hófust fyrstu viðskipti ekki fyrr en kl. 17 á íslenskum tíma. Sjá einnig Bendi til 35% hækkunar eftir útboðið Morgan Stanley, söluráðgjafi SpaceX í útboðinu, var falið það verkefni að meta hvenær tilboðsbókin verður orðin nægilega stór til þess að opna fyrir viðskipti. Með þessu fyrirkomulagi er horft til þess að finna markaðsverð sem gerir viðskiptum með bréf félagsins kleift að fara fram með skilvirkum hætti eftir opnun. Elon Musk, stofnandi SpaceX, hélt ræðu í höfuðstöðvum geimfyrirtækisins í aðdraganda þess að hann hringdi inn viðskipti með bréf félagsins. Hann sagðist hafa í upphafi talið innan við 10% líkur á að rekstur SpaceX myndi ganga upp. Hann sagði félagið einnig stefna að því að geta tekið almenna borgara til Mars og jafnvel lengra út í geim. Nálgast má upptöku af viðburðinum neðst í fréttinni. Fyrr í morgun skat félagið á loft eldflauginni Falcon 9 sem flytur með Starlink gervihnetti út í heim. Sameinast Tesla að lokum? Gwynne Shotwell, hægri hönd Musk hjá SpaceX, viðurkenndi í samtali við CNBC að það myndi einfalda líf Musk ef SpaceX og Tesla myndu sameinast. Hún sagði engan vafa um að samlegð væri milli fyrirtækjanna, sérstaklega ef litið er til lengri tíma. Musk sjálfur hefur áður rætt opinberlega um möguleikann á að sameina fyrirtækin. Hann situr í stjórnum beggja fyrirtækja og fer með yfir 80% af atkvæðarétti hjá SpaceX. Í umfjölluninni er bent á að Tesla og SpaceX, þar á meðal verkfræðingum. Hér má nálgast streymi af viðburði SpaceX í aðdraganda skráningarinnar.