Innlent | Morgunblaðið | 13.6.2026 | 7:00 Aðsend grein: Þjóðaratkvæði um samningaviðræður Elías Elíasson. Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Jæja, þá hefur Alþingi ákveðið að kosið skuli á næsta laxveiðitímabili um að veita stjórnvöldum umboð til framhalds viðræðna um aðild að Evrópusambandinu (ESB). Við höfum áður átt í slíkum viðræðum mánuðum saman en erum samt engu nær um mögulega niðurstöðu. Um hvað, við hverja, fyrir hverja? Samningaviðræðurnar eru að nafninu til við framkvæmdastjórn ESB sem kemur fram fyrir hönd aðildarríkjanna sem hvert um sig hafa neitunarvald gagnvart einstökum liðum. Þannig erum við í raun að semja við Spán um fiskinn, Þýskaland um raforkuna og Frakkland um landbúnaðinn. Framkvæmdastjórnin kemur fram sem eftirlitsráðgjafi ríkjanna og tryggir að við tökum upp það regluverk sem þessi og öll önnur ríki ESB samþykkja, hvert eftir sínum hagsmunum. Allt virðist þetta vera til þess að þeir sem stunda viðskipti í evrum við útlönd geti minnkað gjaldeyrisáhættu sína. Aðrar áhættuvarnir sem Seðlabankinn sér þjóðinni fyrir í gjaldeyrismálum sem öðru munu hins vegar hverfa því Seðlabanki Evrópu yfirtekur hlutverki hans og hugsar fyrst og fremst um hagsmuni iðnaðarins sem mestur er frá N-Ítalíu gegnum Frakkland, Þýskaland og til Austurríkis. Samningsstaðan Við höfum þó að sögn sterka stöðu. ESB-ríkin sárvantar peninga til aukinna útgjalda eftir að iðnaður þeirra hefur orðið undir í samkeppni við Kína og meðferðina sem fjandvinirnir Trump og Pútín hafa staðið fyrir hvor á sinn hátt. Það þarf að fá fleiri þjóðir sem geta lagt eitthvað af mörkum inn í sambandið. Aðildin verður ekki ókeypis. Vandi og áhættuvarnir Engum blöðum er um það að fletta að hagsveiflur erlendis lenda á okkur jafnt sem ríkjum ESB og oft eigum við sameiginlegra hagsmuna að gæta í þeim efnum, samanber bankahrunið 2008. Okkur hættir hins vegar til að gleyma hagsveiflum sem verða hér, ýmist af völdum náttúrunnar eins og í hruni síldarstofnsins á sjöunda áratugnum sem olli víðtæku atvinnuleysi, eða af heimagerðum ástæðum eins og sólstöðusamningunum 1977 sem óðaverðbólga fylgdi. Icesave-málið sem varð til í hruninu vegna áhættutöku útrásarvíkinga í bönkum ESB er líka að mestu gleymt. Það má vel vera að ESB fengist til að hjálpa okkur um lán til að brúa bilið þegar náttúran veldur okkur búsifjum en þau lán verður að greiða aftur með vöxtum. Heimagerðan vanda verðum við að leysa sjálf. Sá heimagerði vandi sem nú er er brýnast að leysa, brenglun húsnæðismarkaðarins, hófst með þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu. Húsnæðisverð hækkaði langtum meir en annað verðlag og olli vaxandi verðbólgu og hærri vöxtum til stórskaða fyrir alla, einkum ungt fólk sem vill stofna heimili og koma undir sig fótum í samfélaginu. Nú er þetta háa verð og vextir að kæla markaðinn svo að siglir í átt að stoppi fyrir marga. Byggingariðnaðurinn kvartar undan vöxtunum en ríkisstjórnarflokkarnir sem bera mesta ábyrgð á ástandinu nota um leið þessa sömu vexti til að hræða fólk inn í sæluríki evrunnar þar sem þeir segja að bjóðist betri vaxtakjör. Evran lagar ekki heimagerðan vanda en hann má nota til að tæla fólk. Annað bragð stjórnarflokkanna var að fá erlenda sérfræðinga til að skrifa skýrslu þar sem dæmið var sett upp eins og Seðlabanki Íslands væri óvirkur. Eðlilega treystu hinir erlendu sérfræðingar sér ekki til að setja fram niðurstöðu en gefa þó í skyn, af trúnaði við þann sem borgar, að niðurstaða þess hluta dæmisins kunni að vera evrunni í hag. Hagsmunir í húfi Það eru að sjálfsögðu auðlindirnar okkar sem sótt er í. Sú regla sem hvað strangast er framfylgt í ESB er reglan um jafnan rétt allra þeirra sem í ESB búa, fjórfrelsið. Þannig þykir Spánverjum sjálfgefið að þeirra sjómenn geti nýtt sér íslensk fiskimið til jafns við heimamenn og fjárfestum Evrópu þykir fengur í hreinni íslenskri orku, svona nokkur hundruð megavöttum vindorku til útflutnings um sæstreng. Það yrðu hæg heimatökin því með gildistöku orkupakkanna yrði Landsreglarinn óháður íslenskum stjórnvöldum en skyldur, samkvæmt ákvæðum orkupakka 3, til að reikna sín dæmi samkvæmt forsendum ESB og hefði síðan ákvörðunarvaldið um tengingar milli landa (pakki 4). Við höfum séð hvaða áhrif slíkar tengingar hafa á raforkuverð í suðurhluta Noregs sem á köflum hefur jafnast við það hæsta í Evrópu. Lokaorð Í samningum við ESB getum við í besta falli vænst einhverra loðinna ákvæða um rétt Íslendinga til nýtingar íslenskra auðlinda, svo sem orku og fiskimiða, en þau ákvæði yrðu síðan háð skapandi lagatúlkun ESB-dómstólsins. Þar á bæ er fjórfrelsið stundum sett ofar öðru svo slík ákvæði gætu orðið skammgóður vermir. ESB hefur styrkt stöðu sína með verndartollum á kísilmálm og grænum skatti á flugeldsneyti. Góðir hlutir til eftirgjafar. Við erum beðin um að láta umboðið til viðræðna í hendur stjórnmálaflokka sem hafa það á stefnuskrá sinni að koma Íslandi inn í ESB, hvað sem tautar og raular. Það styrkir ekki samningsstöðu Íslands. Elías Elíasson, verkfræðingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Pistill: Borg sem mætir þörfum Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Prinsessan er látin Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Álverðið hefur rokið upp Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Nýjast á mbl.is » Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Pistill: Borg sem mætir þörfum Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Álverðið hefur rokið upp Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi