Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 13.6.2026 | 7:30 Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Þórdís Kristmundsdóttir Setja bókamerki Þórdís Kristmundsdóttir, fyrrverandi prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, lést sl. fimmtudag, 11. júní. Þórdís var fædd 13. nóvember 1948, elst fjögurra systkina og dóttir Kristmundar Jakobssonar, f. 1923, d. 2014, loftskeytamanns og símvirkja, og Ástdísar Gísladóttur, f. 1926, d. 1999, húsfreyju. Þórdís lauk stúdentsprófi frá MR 1968 og M.Sc.-prófi í lyfjafræði og síðar doktorsprófi frá Háskólanum í Manchester á Englandi 1976. Hún hlaut sérfræðiviðurkenningu árið 1977 og var Post-Doctoral Research Fellow á vegum I.C.I. Pharmaceuticals við lyfjafræðideild háskólans í Manchester 1977-79. Haustið 1979 hóf Þórdís störf við deild lyfjafræði lyfsala við HÍ. Hún varð prófessor í lyfjagerðarfræði 1986, sem var hennar sérsvið, og önnur konan sem skipuð var prófessor við HÍ. Rannsóknir Þórdísar beindust m.a. að þróun á lyfjaformum sem innihalda sýkladrepandi fitusýrur og mónóglýseríð sem virk efni, í þeim tilgangi að fyrirbyggja smit um slímhimnur og til meðferðar á húð- og slímhimnusýkingum. Um þessi efni hélt Þórdís fyrirlestra og ritaði fjölda greina. Þórdís var ritstjóri Tímarits um lyfjafræði 1980-84 og í fræðslunefnd LFÍ 1985-1988. Hún var framkvæmdastjóri Lyfjafræðingafélags Íslands 1979-1991 og gegndi fjölmörgum trúnaðar- og félagsstörfum fyrir fag sitt og fræði, svo sem á vettvangi Háskóla Íslands og Krabbameinsfélags Íslands. Þórdís var í forystu við uppbyggingu Lyfjafræðideildar í Haga ásamt Þorsteini Loftssyni prófessor og Kristínu Ingólfsdóttur, fyrrverandi rektor HÍ, og var stjórnarformaður Reykjavíkurapóteks-Háskólaapóteks. Á árunum 1986-1988 var Þórdís varaformaður Félags háskólakennara og hún varð fyrst kvenna til að ganga í Rótarý Reykjavík (ásamt Sigríði Snævarr) og sat í stjórn klúbbsins 1997-1998. Í nóvember 2018 var Þórdísi veitt gullmerki Lyfjafræðingafélags Íslands. Eiginmaður Þórdísar er Eiríkur Örn Arnarson, f. 19.7. 1949, prófessor emeritus í sálfræði við Læknadeild HÍ og sérfræðingur í klínískri sálfræði. Dætur Þórdísar og Eiríks eru Hildur, f. 13.4. 1978, viðskiptafræðingur og Kristín Björk, f. 19.3. 1984, lyfjafræðingur. Barnabörnin eru 6 talsins. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íbúðaverð hækkaði um 103% á tíu árum Sex flugferðum aflýst í dag Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Prinsessan er látin Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Nýjast á mbl.is » Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Hreif salinn sannarlega með sér Linda Ben: „Vinsælasta kakan gerð enn betri“ Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Samkomulag á lokametrunum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Spá 16-22 milljarða halla árið 2027 Mest lesið Í gær Í vikunni „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Myndir: Veðurblíða og stemning í miðbænum Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Bjuggu til app til að smala vinum saman Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi

Share this article