Ríkisstjórnarflokkarnir þrír njóta stuðnings 43% þjóðarinnar samkvæmt könnun Gallup í maí og fengju 28 þingmenn væri kosið nú. Þingmeirihluti ríkisstjórnarinnar er þar með kolfallinn samkvæmt könnuninni, en flokkarnir höfðu samanlagt 36 þingmenn eftir kosningarnar 30. nóvember 2024 og þurfa 32 til að halda velli. Ríkisstjórnin missir flesta þingmenn með algjöru afhroði Flokks fólksins. Flokkurinn fékk 13,8% fylgi í kosningunum í nóvember 2024 og 10 þingmenn kjörna í kosningunum en fengi engan kjörinn nú. Flokkurinn hefur þegar tapað einum þingmanni en Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrum menntamálaráðherra er nú utan flokka. Viðreisn fékk 15,8% atkvæða og ellefu þingmenn í alþingiskosningunum 2024 en mældist með 10,6% í þjóðarpúlsi Gallup í maí. Yrði það fylgi niðurstaða kosninga myndi þingmönnum Viðreisnar fækka í sjö og fjórir sitjandi þingmenn missa sæti sín. Það eru Jón Gnarr í Reykjavíkurkjördæmi suður, Grímur Grímsson í Reykjavíkurkjördæmi norður, sem var áður yfirlögregluþjónn, Eiríkur Björn Björgvinsson í Suðvesturkjördæmi, sem áður var bæjarstjóri bæði á Akureyri og á Fljótsdalshéraði og Sandra Sigurðardóttir í Suðurkjördæmi, sem var framkvæmdastjóri þingflokks Viðreisnar og forseti bæjarstjórnar í Hveragerði. Framsóknarflokkurinn myndi einnig missa einn mann samkvæmt þjóðarpúlsinum í maí. Fórnarlamb þess væri Sigurður Ingi Jóhannsson fyrrum formaður Framsóknarflokksins. Aðrir flokkar missa ekki fylgi. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .