Innlent | Sunnudagsblað | 13.6.2026 | 22:36 Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit Brynjólfur Brynjólfsson fremstur á tónleikum Helga og Hljóðfæraleikaranna. Ljósmynd/Daníel Starrason Orri Páll Ormarsson [email protected] Setja bókamerki „ Menn eru komnir með fiðring enda er þetta ekki bara lengsta heldur eina pásan sem hljómsveitin hefur tekið frá því hún var stofnuð árið 1988,“ segir Brynjólfur Brynjólfsson, gítarleikari eyfirsku þjóðlagapönk rokkhljómsveitarinnar Helga og Hljóðfæraleikaranna, sem fram kemur á tónleikum á Græna hattinum á Akureyri á þriðjudagskvöldið eftir 533 daga hlé. Talið verður í stundvíslega kl. 21. Sveitin kom síðast fram á sama stað 30. desember 2024 en eftir það þótti mönnum rétt að taka pásu í einhvern tíma. „Það var aðallega vegna þess að Helgi [Þórsson söngvari] þurfti að sinna bústörfunum meira en venjulega en nú er hann kominn tvíefldur til baka,“ segir Brynjólfur. Eruð þið þá komnir á fulla ferð? „Við eigum alveg eftir að ræða það; við erum bara búnir að taka tvær æfingar. En, já, það verður ábyggilega eitthvað meira, enda er það lífsmáti að vera í þessari hljómsveit og ég hef enga trú á því að menn geti haldið sig frá þessu. Ég gef engin loforð um tónleikahald en við ættum að geta komið saman alla vega tvisvar til þrisvar á ári,“ segir Brynjólfur en um árabil voru Helgi og Hljóðfæraleikararnir með fasta viðveru á Græna hattinum 16. júní og 30. desember. „Græni hatturinn er frábær tónleikastaður og Haukur [Tryggvason] vert á heiður skilinn fyrir sitt framlag til tónleikamenningar hér fyrir norðan. Þarna er allt eins og best verður á kosið, aðstæður, græjur og annað.“ Brynjólfur segir alls ekki nauðsynlegt að taka margar æfingar fyrir endurkomuna enda séu lögin meira og minna öll í vöðvaminninu. Teknir verða helstu slagararnir úr sögu hljómsveitarinnar og Brynjólfur útilokar ekki að eitthvert nýmeti fái að fljóta með. „Það verður hræódýrt inn, eins og alltaf hjá okkur. “ Nánar er rætt við Brynjólf í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Photos: Beautiful weather continues Brasilía - Marokkó, staðan er 1:1 Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Karl kemst ekki heim Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég átti rosalega erfitt í skóla“ Nafnvextir einir segja lítið um húsnæðiskostnað Hafa fengið hærri reikninga Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Mest lesið Í gær Í vikunni Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Nýjast á mbl.is » Photos: Beautiful weather continues Brasilía - Marokkó, staðan er 1:1 Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ Karl kemst ekki heim Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Íhuguðu að kasta sér fram af brú Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Íhuguðu að kasta sér fram af brú Samningnum sagt upp: „Eins og við séum ekki fólk“ Subway auglýsir verð í evrum Létu lífið tæpum sólarhring áður en lögreglan kom Sex flugferðum aflýst í dag Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Réðst á dreng í sundi Eldurinn kviknaði út frá hleðslutæki Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Málið dagaði uppi hjá starfsmanni Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Ástæða til að hafa áhyggjur Myndir: Sjötugur Bubbi sló í gegn Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna