Í hagspá Landsbankans er bent á að raungengi krónunnar sé nú við sögulegt hámark. Slík staða dragi úr samkeppnishæfni og sé ekki sjálfbær til lengri tíma. Því megi gera ráð fyrir leiðréttingu fyrr eða síðar, þótt ekki sé hægt að segja til um hvenær. Bankinn reiknar með áframhaldandi jafnvægi á gjaldeyrismarkaði og spáir ekki miklum breytingum á gengi krónunnar en gerir þó ráð fyrir lítils háttar veikingu, einkum í ljósi hins háa raungengis. Í spá bankans kemur jafnframt fram að árið 2025 hafi raungengi miðað við hlutfallslegt verðlag verið um 15% yfir meðaltali áranna 1980-2025. Á tímabilinu hefur það aðeins fjórum sinnum mælst hærra, eða árin 1981, 1988, 2005 og 2017. Íslandsbanki spáir einnig að raungengi krónu verði að líkindum áfram hátt í sögulegu samhengi, a.m.k. meðan ekki verður meira bakslag í útflutningsgeiranum en bankinn spáir. Þar sem laun og verðlag hækki hraðar hér en í viðskiptalöndum fari þó ekki hjá því að nafngengi krónu þurfi að gefa eftir síðar meir, annað hvort hægt og bítandi eða með stærri leiðréttingu þegar frá líður. Gengisspá bankans gerir ráð fyrir hægfara veikingu fremur en snarpri leiðréttingu. Það felur í sér að krónan veikist jafnt og þétt og verður að jafnaði 5% veikari í lok spátímans en í árslok 2025. Arion banki spáir svo að sterk krónan styrkist enn frekar á þessu ári en taki að veikjast á næsta ári. Raungengið sé mjög hátt um þessar mundir, sem dragi úr samkeppnishæfni þjóðarbúsins, sérstaklega þegar litið sé til launakostnaðar. Í íslenskri hagsögu sé það ávallt nafngengið sem gefi eftir, og telur greiningardeild bankans að það verði einnig raunin að þessu sinni – en að leiðréttingin verði smærri í sniðum þar sem hluti aðlögunar hagkerfisins virðist nú fara í gegnum vinnumarkaðinn. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .