Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Verðum að heyja þessa baráttu af fullri alvöru“

  • What: Iceland is implementing a national plan to eradicate scrapie in sheep.
  • Impact: The plan involves identifying and breeding sheep with a protective genotype to combat the disease.
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.2.2026 | 14:22 „Verðum að heyja þessa baráttu af fullri alvöru“ Sauðfé. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Landsáætlun stefnir að útrýmingu riðu og til að ná þeirri niðurstöðu eru miklar vonir bundnar við þessa verndandi arfgerð sem hefur fundist (V) og stefnt að því að rækta hana upp eins mikið og hægt er,“ segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun (MAST). Eins og Morgunblaðið greindi frá á föstudaginn barst bændum á bæjum sem nú eru flokkaðir sem áhættubæir nýlega bréf vegna þess að þeir eru í návígi við bæi þar sem riða hefur greinst. Margir voru slegnir yfir þeim úrskurði, því engin riða hafði greinst hjá þeim, en í bréfinu er þeim gefinn kostur á að andmæla og koma með sín rök til MAST. Riða algengari hér Þóra segir að í Landsáætlun um útrýmingu á sauðfjárriðu komi saman atvinnuvegaráðuneytið, Matvælastofnun og Bændasamtök Íslands með sameiginlega stefnu um að stíga fast til jarðar í baráttunni við riðu „Þetta er samstarf allra þessara aðila til að berjast saman gegn sauðfjárriðu.“ Spurð hvers vegna strangari reglur séu í nýrri reglugerð heldur en í ESB segir hún að riðuveiki sé algengari á Íslandi en í öðrum Evrópuríkjum. „Hér á landi hafa ekki áður fundist verndandi arfgerðir til að beita í baráttunni gegn riðu. Tekin var ákvörðun í samráðshópi gegn sauðfjárriðu um að ásættanleg áhætta til að skilgreina áhættubæi væri að horfa til tvöfalds meðalmeðgöngutíma riðuveiki, þ.e. frá þeim tíma sem smit berst í dýr og þangað til klínísk einkenni eru líkleg til að koma fram. Þess vegna eru áhættubæir í þeim flokki í sjö ár.“ Telur breytingar til bóta Hún segir að MAST treysti vel bændum til að tilkynna grun um smit, en heimsóknir dýralækna á áhættubæi til að framkvæma klíníska skoðun séu hugsaðar sem viðbót til að styðja bændur við eigið eftirlit. Farið verði tvisvar á ári á þá bæi sem flokkast sem áhættubæir á tímabilinu á haustin frá sláturtíð til jóla og frá janúar og til loka mars. Ekki verði farið í slíkar heimsóknir þegar nær dregur sauðburði og ef bændur óttast annað þá er það á misskilningi byggt. Á bæi þar sem greinst hefur riða er farið árlega. Það sé hins vegar ekki hægt að sinna þessum heimsóknum samhliða með reglubundnu eftirliti því það fer mun sjaldnar fram en gert er ráð fyrir hér, eða fjórða hvert ár að meðaltali á sauðfjárbúum. „Þær breytingar sem voru gerðar á reglugerðinni tel ég hafa verið bændum í hag og ég tel þær auka líkur á að við náum árangri gegn riðu. Bæði geta bændur sótt um girðingastyrk til að aðstoða þá við að halda því fé heima sem ekki má fara á afrétt og einnig er hægt að sækja um leyfi til að sleppa fé sem ber verndandi arfgerðir á afrétt, sem er talið ólíklegt að beri smit. Jafnframt standa yfirvöld straum af heimsóknum dýralækna til að framkvæma klíníska skoðun á riðu- og áhættubæjum og veita bændum stuðning við eigið eftirlit. Smit á stærstu ræktunarbúum Eyjólfur Ingvi Bjarnason í Ásgarði í Dölum er formaður sauðfjárbænda. Hann segir að vissulega bitni þessar aðgerðir mest á þeim svæðum þar sem riða hefur fundist en telur þó að aðgerðirnar séu nauðsynlegar í baráttunni gegn sjúkdómnum. „Í eldri reglugerð voru settar hömlur á varnarhólfið í heild sinni í 20 ár þannig að 7 ár er væg aðgerð sem nær til minna svæðis en áður.“ Mörg býli í Vestur-Húnavatnssýslu höfðu keypt hrúta á búunum Bergsstöðum og Urriðaá þegar riða fannst þar árið 2023 og eru býli þeirra þess vegna nú flokkuð sem áhættubú vegna þeirra tenginga. „Hins vegar tel ég að breytingarnar séu skref í rétta átt og almennt hafa bændur stutt þessar aðgerðir þótt einhverjir séu slegnir yfir að vera nú flokkaðir á áhættubúum og vissulega geti verið að hægt sé að sníða vankanta af einhverjum framkvæmdaatriðum. En við verðum að heyja þessa baráttu af fullri alvöru, svo þessi vágestur sé ekki vofandi yfir okkur,“ segir hann en bætir þó við að enn sé verið að rannsaka mismunandi afbrigði riðu, en verndandi arfgerðir séu samt lykillinn að lausninni. Áhættubæir Gátlisti Bóndabýli geta fengið flokkunina áhættubæir þrátt fyrir að riða hafi aldrei greinst þar, ef eftirfarandi návígi við riðu hefur orðið: •Fé til lífs frá riðubæ (hrútar/ær/lömb), eða hrútar fengnir að láni frá riðubæ, ekki með V og einnig með V •Sameiginlegt fjárrag í húsi, eða í aðhaldi heima á bæjum •Samgangur/-hjálp bænda á sauðburði •Samnýting tækja/tóla með beina snertingu við slímhúð eða líkamsvessa •Sameiginlegur fjárflutningur •Samnýting tækja með beina snertingu við fé •Samnýting á skítadreifurum •Sameiginlegt beitiland með fóðurgrindum/drykkjartrogum •Fóður fengið frá riðubæ •Regluleg samnýting landbúnaðartækja með óbeina snertingu við fé •Landfræðileg lega nærri riðusmiti V táknar verndandi arfgerð Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér „Verðum að heyja þessa baráttu af fullri alvöru“ Jákvæðar fréttir úr herbúðum Arsenal Stór maður sem vill litla bíla Öruggur í starfi hjá United þrátt fyrir sögusagnir Bæjarstjóri leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Clinton sakar Trump um yfirhylmingu Krefst gagna vegna breyttra skráninga dánarorsaka Fólk farið að meðtaka veruleikann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum „Verðum að heyja þessa baráttu af fullri alvöru“ Jákvæðar fréttir úr herbúðum Arsenal Stór maður sem vill litla bíla Öruggur í starfi hjá United þrátt fyrir sögusagnir Bæjarstjóri leiðir Sjálfstæðisflokkinn í Garðabæ Brugðist við breyttum heimi Fer Evrópusambandið þá með rangt mál? Fleira áhugavert „Það verður bara að koma í ljós“ Vonast til að geta fundið Lúðvík Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Besti árangur Íslendings í 20 ár Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Verðið allt að 67% hærra hér Vonast til að geta fundið Lúðvík Þekktur staður og of mikið um árekstra Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Lögreglan lýsir eftir manni Grunaður dópsali gripinn eftir símtal undir stýri 180 milljónir króna í starfslokasamninga Dregur framboð sitt til baka Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Alma auglýsir tvær forstjórastöður Sótti fólk í vanda en festist sjálfur Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Allt að 18 stiga frost í dag Ingu „gjörsamlega misboðið“ Tveir fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Dregur framboð sitt til baka 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article