Matís hefur tekið við greiningum á arfgerðum sauðfjár sem stýra þoli gegn riðu. Ný reglugerð um riðuveiki í fé tók gildi um áramót. Markmiðið er að útrýma riðuveiki í sauðfé á Íslandi fyrir árið 2044. Arfgerðagreiningum er ætlað að styðja við langtímaaðgerðir sem miða að sjálfbærari og öruggari sauðfjárrækt. Í tilkynningu frá Matís segir að verkefnið snerti matvælaöryggi, byggðamál og framtíð íslensks landbúnaðar. „Þátttaka hefur verið mjög góð og það hefur verið mikill kraftur í þessu. En þetta tekur bara ákveðinn tíma því þetta eru þessi umskipti sem þurfa að vera sem verða með hverjum nýjum árgangi sem kemur inn,“ segir Eyþór Einarsson, sauðfjárræktarráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Íslensk erfðagreining sinnti áður greiningum á arfgerðasýnum sauðfjár og arfgerðargreiningar síðasta árs voru þær umfangsmestu til þessa. Eyþór fjallaði um niðurstöður greininga síðasta árs í Bændablaðinu. „Núna erum við komin með þarna 11% af ánum með einhverja vernd og þetta mun taka svona næstu sjö til átta árin að gjörbylta stofninum. Það er það sem við erum að gera í rauninni.“ Matís tók við um áramótin í samræmi við samkomulag við Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins. Niðurstöður verða aðgengilegar í skráningarkerfinu Fjárvís, þar sem bændur og ráðgjafar hafa aðgang að.