Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Evrópsk hlutabréf í hæstu hæðum

Read Full Article →

STOXX 600 hlutabréfavísitalan hækkaði um nærri eitt prósent í morgun og náði methæðum í 641,48 stigum. Vísitalan er þar með búin að rétta alfarið úr kútnum eftir lækkanir í kjölfar þess að stríðsátökin í Íran brutust út í lok febrúar. Hækkunin í morgun má rekja til samninga milli Bandaríkjanna og Íran um framlenginu á vopnahléi, auk þess að samið var um að opnað skuli fyrir skipaumferð um Hormússund á ný. Margar af stærstu hlutabréfavísitölum í Bandaríkjunum og Asíu eru nokkuð hærri en þær voru áður en stríðsátökin hófust. Hækkun þeirra hefur að stórum hluta verið drifin áfram af tæknifyrirtækjum, sem vega þyngra en í evrópskum vísitölum.

Share this article