Fjárfestar eru á ný farnir að beina fjármagni til evrópskra hlutabréfa eftir sterkt uppgjörstímabil og minnkandi áhyggjur af áhrifum stríðsins milli Bandaríkjanna og Írans. Hlutabréfasjóðir sem fjárfesta í Evrópu skiluðu jákvæðu nettóinnflæði í júlí í fyrsta sinn síðan átökin hófust í lok febrúar, að því er segir í umfjöllun Financial Times. BlackRock greindi frá 4,4 milljarða dala innflæði í evrópskar hlutabréfavörur í júlí og sagði það til marks um að fjárfestar væru að færa sig frá sveiflukenndum tæknibréfum. Fjárfestar hafa í auknum mæli beint sjónum sínum að Evrópu eftir miklar sveiflur í bandarískum tækni- og hálfleiðarabréfum. Sterk afkoma evrópskra fyrirtækja hefur stutt við þróunina. Fyrirtæki í Stoxx Europe 600-vísitölunni stefna í 22% hagnaðarvöxt á öðrum ársfjórðungi samkvæmt gögnum FactSet, sem yrði mesti vöxtur frá 2022. Stoxx Europe 600 hefur sett hvert metið á fætur öðru síðustu daga. Þá hafa helstu hlutabréfavísitölur í Þýskalandi, Bretlandi, Frakklandi og á Spáni einnig hækkað verulega. Bankar hafa verið meðal helstu drifkrafta hækkunarinnar. Hagnaður BNP Paribas jókst um þriðjung á öðrum ársfjórðungi en hagnaður UBS jókst um 17% og náði methæðum. Bankavísitala Stoxx hefur hækkað um rúmlega 21% frá áramótum, samanborið við 11,5% hækkun Stoxx Europe 600. Lækkandi olíuverð hefur jafnframt dregið úr áhyggjum af áhrifum stríðsins á evrópskt efnahagslíf. Olíuverð hefur færst niður fyrir 90 dali á tunnu eftir að merki komu fram um að Bandaríkin og Íran reyni að draga úr spennu. Evrópa er sérstaklega viðkvæm fyrir hækkandi orkuverði þar sem álfan er háð innfluttri orku. Aukin áhersla fjárfesta á Evrópu snýst þó ekki eingöngu um horfur í álfunni. Mikil sala á bandarískum tækni- og hálfleiðarabréfum í júlí hefur jafnframt aukið áhuga á mörkuðum þar sem afkoma er síður háð gervigreindar- og tæknifyrirtækjum. Innflæði í evrópsk hlutabréf er þó enn undir methæðum ársins og erlendir fjárfestar sýna markaðnum fremur valkvæðan áhuga. Bandarísk fyrirtæki sýna jafnframt enn fram á mun meiri hagnaðarvöxt, um 50% samkvæmt FactSet.