Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Rafmagnslaust í Kjós og Hvalfirði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 20 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Raf­magns­laust í Kjós og Hval­firði Markús Þ. Þórhallsson Norðurljós yfir Hvalfirði. Mynd úr safni. Wioleta Gorecka Vegna bilunar er rafmagnslaust í Kjós og Hvalfirði. Rafmagn fór af skömmu eftir miðnætti og samkvæmt upplýsingum RARIK er unnið að viðgerð og vonast til að rafmagn komi aftur á klukkan hálfþrjú. Fyrir 59 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Reitir áforma upp­bygg­ingu á nýju hjúkr­un­ar­heim­ili á Ak­ur­eyri Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast í útboði FSRE. Hjúkrunarheimilið mun verða um 9.100 fermetrar að stærð með rými fyrir 140 íbúa og áætlaður framkvæmdakostnaður um 8,9 milljarðar króna. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Al­vot­ech efnir til útboðs hluta­bréfa að and­virði 15,6 millj­arða króna Alvotech tilkynnti í dag að félagið ætli að efna til sölutryggðs hlutafjárútboðs í Bandaríkjunum að auki við að tilteknir fagfjárfestar á EES-svæðinu hafi skráð sig fyrir bréfum félagsins í lokuðu útboði. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Íþróttir Fram­kvæmd­ir við nýja þjóð­ar­höll hefj­ast í haust Framkvæmdir við nýja þjóðarhöll hefjast í haust og er gert ráð fyrir að byggingin verði tekin í notkun árið 2030 segir verkefnisstjóri. Samkeppnisútboði um hönnun og byggingu hallarinnar lauk á dögunum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Mynda­vél­um komið fyrir í Klaustr­inu í Garða­bæ Á annað tug tilkynninga hafa borist um húsbrot í Klaustrið í Garðabæ á þessu ári. Slökkvilið hyggst taka út öryggi þess á næstu dögum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Ráð að kíkja á símann hjá ömmu og afa Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar hvetur fólk til þess að kíkja á síma hjá aðstandendum sínum sem eru eldri að árum og athuga hvort þeir nái sambandi. Íbúi á Skagaströnd reyndi fimm sinnum að hringja í Neyðarlínuna á föstudag en náði ekki sambandi. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Belgía - Eg­ypta­land Belgía og Egyptaland gerðu 1-1 jafntefli í fyrsta leik G-riðils á HM í fótbolta. Hér má mörkin og allt það helsta úr leiknum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Flokk­ur fólks­ins reiðu­bú­inn að setj­ast við samn­inga­borð­ið ef þjóðin segir já Flokkur fólksins er reiðubúinn að sitja við samningaborðið ásamt hinum ríkisstjórnarflokkunum og reyna að ná fram besta mögulega samningi ef meirihluti landsmanna vill hefja á ný aðildarviðræður við ESB, segir innviðaráðherra. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Einn kærður fyrir að berja kýr og annar sekt­að­ur fyrir að skera kindur á háls Þónokkrir gælu- og húsdýraeigendur hafa verið sviptir vörslu á dýrum sínum eða hafa hlotið sektir á undanförnum fjórum mánuðum. Dýrin voru ýmist vanrækt eða umhirðu þeirra ábótavant. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Fram sótti sigur í marka­leik fyrir norðan Fram heimsótti KA í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fram situr í þriðja sæti deildarinnar með 23 stig og er nú tveimur stigum frá KR í öðru sæti. KA er í áttunda sæti deildarinnar með 10 stig. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hrunamannahreppur For­seta­hjón­in og Græn­lend­ing­ar fá sveppi frá Flúðum Um ellefu og hálft tonn af sveppum eru ræktuð hjá Flúðasveppum á Flúðum í viku hverri. Grænlendingar fá hluta af sveppunum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Vildu ekki senda sjúkra­bíl þegar Neyð­ar­lín­an svar­aði ekki Neyðarsímtöl náðu ekki í gegn þegar maður á Skagaströnd og kona í Fossvogi reyndu ítrekað að kalla eftir aðstoð síðasta föstudag. Þá vildi Heilbrigðisstofnun Norðurlands ekki senda sjúkrabíl af stað, þar sem beiðnin kom ekki frá Neyðarlínunni. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Spánn - Græn­höfða­eyj­ar Ein óvæntustu úrslit til þessa á HM í fótbolta urðu þegar Evrópumeistarar Spánar og Grænhöfðaeyjar gerðu markalaust jafntefli í H-riðli. Hér má sjá helstu tilþrifin úr leiknum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Reyna í þriðja sinn að fá hoppu­kast­ala­máli vísað frá dómi Verjendur fimm sakborninga í hoppukastalamálinu svokallaða fóru í dag fram á að málinu yrði vísað frá dómi. Meira en þrjú ár eru liðin síðan ákæra var gefin út. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Ótíma­bært að full­yrða hvort lækkun hafi skilað sér á dæl­unni Samkeppniseftirlitið kannar enn hvort lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti 1. maí hafi skilað sér að fullu til neytenda. Forstjóri þess segir ótímabært að meta hvort olíufélög verði beitt sektum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Til skoð­un­ar að kæra mann sem ók á níu ára barn og stakk af Lögreglan hefur til skoðunar hvort maður sem ók á níu ára stúlku í Hafnarfirði í morgun verði kærður fyrir að yfirgefa vettvang. Stúlkan fann fyrir eymslum eftir áreksturinn en var ekki flutt á sjúkrahús. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Milt­is­brands­graf­ir víða í borg­ar­land­inu Mikilvægt er að ljúka við gagnagrunn um mengaðan jarðveg á Íslandi, segir sérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun. Víða er mengaðan jarðveg að finna, þar á meðal miltisbrandsgrafir. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Finnland Ákærð­ir fyrir að skemma sæ­strengi Finnsk yfirvöld hafa ákært rússneskan skipstjóra og annan úr áhöfn flutningaskips fyrir að hafa skemmt sæstrengi sem lágu milli Finnlands og Eistlands í lok síðasta árs. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa „Við eigum hik­laust að reyna að bregð­ast við og snúa þess­ari skað­legu þróun“ Sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar Íslands vill sambærilegt bann hér á landi og Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, kynnti í morgun um samfélagsmiðlanotkun barna. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi At­vinnu­leys­is­bóta­tíma­bil stytt­ist um 6 mánuði Erla María Markúsdóttir RÚV / Ragnar Visage Atvinnuleysisbótatímabil styttist úr 30 mánuðum í 24 samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Alþingi í dag. Upphaflega stóð til að stytta þann tíma sem fólk getur þegið atvinnuleyisbætur í 18 mánuði en sex mánuðum var bætt við í meðförum þingsins. Frumvarp um miðlægan gagnagrunn yfir nemendur í grunn- og framhaldsskóla var einnig samþykkt. Með honum fá skólayfirvöld yfirsýn um skólavist, mætingu og námsferil barna. Loks var samþykkt frumvarp fjármálaráðherra um að laun æðstu ráðamana hækki um 3,5 prósent í júlí en ekki 9,7 prósent eins og þau hefðu gert að óbreyttu. Gert er ráð fyrir að þingstörfum þennan veturinn ljúki síðar í vikunni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ók á barn og stakk af Ökumaður yfirgaf vettvang eftir að hafa ekið á barn í Hafnarfirði í dag. Sjúkrabíll var kallaður út en enginn var fluttur á sjúkrahús, að sögn slökkviliðs. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Vilja greina áhrif ESB-að­ild­ar á höf­uð­borg­ina Í tillögu borgarfulltrúa Samfylkingarinnar segir að skortur sé á gögnum um áhrif aðildar að ESB á efnahag og fjárfestingargetu stærstu sveitarfélaga landsins. Þeir leggja til að skipaður verði starfshópur sem skili samantekt um áhrifin. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Þjálf­ar­inn rekinn eftir fyrsta leik á HM Hans Steinar Bjarnason Knattspyrnusamband Túnis rak landsliðsþjálfarann Sabri Lamouchi strax eftir fyrst leik liðsins á HM karla í fótbolta. Ákvörðunin var tekin eftir 5–1 tap gegn Svíum í fyrsta leik liðsins í F-riðli. Lamouchi tók við liðinu í janúar á þessu ári en náði aðeins að stýra því í fimm leikjum. Sabri Lamouchi í leiknum gegn Svíum í nótt. AP / Matias Delacroix Samkvæmt fjölmiðlum í Túnis var ákvörðunin tekin á neyðarfundi sambandsins skömmu eftir leikinn. Tæknistjóri sambandsins, Mondher Kebaier, er sagður líklegastur til að taka við liðinu tímabundið fyrir næstu leiki á mótinu. Túnis á eftir að mæta Japan og Hollandi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Samn­ing­ur þegar und­ir­rit­að­ur raf­rænt Hallgrímur Indriðason Frá Hormússundi í síðustu viku. Enn er lítið hreyfing á umferð þó að Donald Trump segir hana opna að hluta. AP/ISNA / Amirhosein Khorgooi Donald Trump forseti Bandaríkjanna, JD Vance varaforseti og Mohammad Bagher Ghalibaf forseti íranska þingsins hafa þegar undirritað samkomulagið um að ljúka stríðinu í Miðausturlöndum rafrænt. Þetta hafa fjölmiðlar eftir ónafngreindum embættismanni. Formleg undirritun er þó áfram fyrirhuguð á föstudag. Trump sagði fyrir fund með Emmanuel Macron forseta Frakklands í dag að skip væru þegar farin að sigla um Hormússund og að sundið yrði opið að fullu á föstudaginn. Gögn benda til þess að umferð um Hormússund sé enn takmörkuð. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vé­fengja yf­ir­lýs­ing­ar Trumps um opnun Hormúss­unds Skipaumferð um Hormússund er hafin að nýju, segir Bandaríkjaforseti. Gögn frá greiningarfyrirtækjum benda þó til þess að umferð um sundið sé enn mjög takmörkuð. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Árás Rússa á fornt klaust­ur for­dæmd víða Evrópusambandið, UNESCO og þýsk stjórnvöld eru meðal þeirra fjölmörgu sem hafa fordæmt árás Rússa á Hellaklaustrið sem er á heimsminjaskrá. Forseti Úkraínu segir Rússa viljandi hafa sprengt klaustrið. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Þórdís Lóa ráðin fram­kvæmda­stjóri Fé­lags­bú­staða Stjórn Félagsbústaða hf. hefur ráðið Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Hún hefur störf 10. ágúst. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Deilan þung og erfið: „Þetta heldur áfram þetta tos“ Ríkissáttasemjari segir kjaradeilu Icelandair og FÍA enn mjög þunga. Viðræðurnar mjakist mjög hægt áfram. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Græn­höfða­eyj­ar stálu sen­unni og Lukaku þurfti 22 sek­únd­ur Keppni hófst í G- og H-riðlum á heimsmeistaramóti karla í fótbolta í dag. Óvænt úrslit urðu í fyrsta leik dagsins þegar Evrópumeistarar Spánar gerðu markalaust jafntefli við Grænhöfðaeyjar í H-riðli. Belgía og Egyptaland gerðu svo 1-1 jafntefli í fyrsta leik G-riðils. Tveir leikir verða í kvöld og í nótt, Sádí Arabía - Úrúgvæ í H-riðli klukkan 22:00 og Íran - Nýja Sjáland

Share this article