Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukinn rekstrarhagnaður hjá Costco

Read Full Article →

Costco á Íslandi hagnaðist um 557 milljónir króna síðasta reikningsári, sem lauk 31. ágúst 2025, samanborið við 605 milljónir króna árið áður. Rekstrarhagnaður félagsins (EBIT) jókst úr 36 milljónum í 94 milljónir króna milli ára. Smásölufyrirtækið hyggst ekki greiða út arð vegna síðasta rekstrarárs. Til samanburðar greiddi félagið út 4,5 milljarða króna með arðgreiðslu og lækkun hlutafjár á síðasta ári. Það var í fyrsta útgreiðsla íslenska dótturfélagsins til Costco samstæðunnar frá því að verslunin í Kauptúni var opnuð í maí 2017. Sjá einnig Costco á Ís­landi hyggst greiða út 4,5 milljarða Sala Costco á Íslandi jókst um 7,9% milli ára og nam 26,7 milljörðum króna á síðasta reikningsári. Framlegðarhlutfall nam 12,8%, samanborið við 12,6% árið áður. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir jókst um 19,3% og nam 399 milljónum króna. EBITDA-hlutfall fór úr 1,35% í 1,49% milli ára. Sem fyrr segir nam EBIT-hagnaður 94 milljónum króna, eða sem samsvarar 0,35% af veltu félagsins. Hrein fjármagnsgjöld námu 593 milljónum króna, samanborið við 725 milljónir árið áður. Það má að stórum hluta rekja til þess að félagið heldur á miklu handbæru fé. Í lok ágúst 2025 nam handbært fé félagsins 3,5 milljörðum króna, samanborið við 7,1 milljarð árið áður. Rekstur ársins skilaði handbæru fé að fjárhæð 1.293 milljónir króna. Eignir Costco á Íslandi námu 10,7 milljörðum króna í lok síðasta reikningsárs. Eigið fé félagsins var 6,8 milljarðar króna og skuldir 3,7 milljarðar króna en þar af voru skuldir við tengda aðila um 770 milljónir króna. Costco Wholesale Iceland ehf. er endanlega í eigu Costco Wholesale Corporation sem er með höfuðstöðvar í Washington ríki í Bandaríkjunum. Lykiltölur / Costco Wholesale Iceland ehf. 1.9.24 -31.8.25 1.9.23 -31.8.24 Sala 26.718 24.760 EBITDA 399 335 EBIT 94 36 Hreinar fjármagnstekjur 593 725 Hagnaður e. skatta 557 605 Eignir 10.727 14.556 Handbært fé 3.503 7.084 Eigið fé 6.796 10.772 Starfsmenn í fullu starfi 97 85 Starfsmenn í hlutastarfi 102 99 Framlegðarhlutfall 12,8% 12,6% Kostnaðarhlutfall 12,4% 12,5% - fjárhæðir í milljónum króna og fjöldi starfsmanna í lok árs

Share this article