Drykkjavöruframleiðandinn Coca-Cola Europacific Partners Ísland (CCEP á Íslandi), sem hét áður Vífilfell, skilaði 18 milljóna króna hagnaði árið 2025. Afkoma eftir skatta batnaði um 100 milljónir frá fyrra ári þegar félagið tapaði 82 milljónum króna. „Þessi viðsnúningur endurspeglar árangur stefnumarkandi aðgerða, áframhaldandi áherslu á góða þjónustu og öflugt samstarf við viðskiptavini og bendir til að félagið sé á leið í átt að arðbærum og sjálfbærum rekstri,“ segir í skýrslu stjórnar í nýbirtum ársreikningi. Áfram rekstrartap Sala CCEP á Íslandi jókst um 3,6% milli ára og nam 12,7 milljörðum króna. Nettó sala, þ.e. þegar búið er taka tillit til vörugjalda, jókst um 6,4% milli ára og nam 8,4 milljörðum króna. Framlegð í krónum talið jókst um 11,5% og nam tæpum 2,7 milljörðum. Félagið segir vöxtinn einkum hafa verið drifin áfram af áframhaldandi styrk ferðaþjónustu sem jók eftirspurn bæði í veitingarekstri og smásölu. „Á sama tíma jókst kostnaðarþrýstingur vegna viðvarandi verðbólgu, hárra vaxta, hækkandi launakostnaðar og hægari efnahagsvaxtar, sem þrengdi að framlegð.” EBIT-afkoma félagsins var neikvæð um 125 milljónir í fyrra, samanborið við 277 milljóna króna EBIT-tap árið 2024. Ársverk voru 146 í fyrra, samanborið við 148 árið áður. Eignir CCEP á Íslandi voru bókfærðar á tæplega 10 milljarða króna í árslok 2025 og eigið fé var um um 7,7 milljarðar. Félagið er í eigu Coca-Cola Europacific Partners, stærsta sjálfstæða átöppunarfyrirtæki Coca-Cola í heimi. „Sterk eiginfjárstaða og litlar skuldir veita félaginu bolmagn til að halda áfram að fjárfesta og styrkja félagið í samkeppni á markaði sem og halda áfram í sinni vegferð í sjálfbærnimálum,“ segir stjórn félagsins.