Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys í Hafnarfirði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Flutt­ur á sjúkra­hús eftir vinnu­slys í Hafn­ar­firði Hugrún Hannesdóttir Diego Maður á fimmtugsaldri var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á Koparhellu í Hafnarfirði í gær. Hann missti meðvitund um stund en sat uppréttur og gat talað þegar lögreglumenn komu á staðinn, segir Skúli Jónsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Skúli segir manninn hafa fallið tvo metra úr vinnuvél með höfuðið á undan. Hann hafi verið með áverka á andliti eftir fallið. Upplýsingar um líðan hans liggja ekki fyrir. Fyrir 4 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Sund Sig­ur­geir þurfti að hætta sund­inu í Lag­ar­fljóti eftir 15 kíló­metra Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson neyddist til þess að ljúka sundi sínu um Lagarfljót fyrr en áætlað var. Fljótið var kaldara en búist var við og spár gerðu ráð fyrir. Hann er kominn undir eftirlit sérfræðinga á Neskaupstað. Fyrir 33 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Úln­liðs­brotn­aði við hand­töku og kærði lög­reglu Nefnd um eftirlit með lögreglu telur lögregluþjóna hafa farið fram úr meðalhófi þegar einstaklingur úlnliðsbrotnaði við handtöku á Akureyri í mars. Málið er á borði héraðssaksóknara. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Gjald­töku­heim­ild op­in­berra há­skóla rædd á þingi Grétar Þór Sigurðsson Ræðustóll Alþingis. RÚV Boðað hefur verið til þingfundar klukkan 10:30 í dag þar sem meðal annars verða til umræðu þingsályktunartillaga forsætisnefndar um hvernig skuli minnast 1100 ára afmælis Alþingis árið 2030 og frumvörp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla og um gjaldtökuheimildir opinberu háskólanna. Hið síðarnefnda felur í sér heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum sem koma utan EES. Þá eru tvær atkvæðagreiðslur sem snúa að vernd og orkunýtingu á dagskrá þingsins. Fjármálaáætlun næstu fimm ára var samþykkt í miklum ágreiningi á þinginu í gær. Stefnt er á að ljúka þingstörfum í þessari viku. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf „Það er ákveð­in pól­it­ík sem felst í því að strá um sig hlýju og gleði“ „Ég á það alveg til að vera dapur en það varir yfirleitt ekki lengi. Ég á mjög auðvelt með að hrista það af mér,“ segir gleðigjafinn Helgi Björnsson sem oftast tekst að finna björtu hliðarnar á lífinu og tilverunni. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Veð­ur­gæð­un­um mis­skipt á 17. júní Í dag verður hlýjast á Norður- og Vesturlandi þar sem hiti getur náð allt að 18 stigum. Líkur eru á síðdegisskúrum suðvestanlands. Veðurgæðunum verður misskipt á morgun, 17. júní. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti „Verk­efn­ið er að koma liðinu upp á tærnar“ Jón Þór Hauksson er tekinn við þjálfun karlaliðs Stjörnunnar í fótbolta. Hann stýrir liðinu í sínum fyrsta leik í kvöld þegar liðið spilar við Breiðablik. Hann segist spenntur fyrir verkefninu. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Kjara­við­ræð­ur flug­manna og Ic­elandair halda áfram í dag Markús Þ. Þórhallsson Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan tíu árdegis. Ein af flugvélum Icelandair. Áfram verður fundað í kjaradeilu flugmanna og félagsins í dag. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari sagði fréttastofu RÚV í gær að deilan væri hvort tveggja þung og erfið. Margar tillögur til lausnar hefðu verið lagðar fram en viðræðurnar mjökuðust mjög hægt áfram. Ástráður vildi aðspurður hvorki greina efnislega frá innihaldi tillagnanna né tjá sig um hvort aflýsingar flugferða Icelandair héldust í hendur við gang viðræðna. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Haítí Á þriðja þúsund drepin í átökum það sem af er ári — að­al­fram­kvæmda­stjóri SÞ vænt­an­leg­ur til Port-au-Prince Markús Þ. Þórhallsson Yfir 2.300 hafa verið drepin í átökum glæpagengja á Haítí það sem af er þessu ári að sögn Volkers Türk, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna. Antonio Guterres er væntanlegur til Haítí í dag. EPA / Ana Nascimento NTB-fréttaveitan greinir frá og segir að yfir þúsund til viðbótar hafi særst og næstum hundrað verið rænt. Vopnuð og illskeytt glæpagengi hafa haldið landinu í heljargreipum árum saman og ástandið hefur sífellt farið versnandi. Máttlitlar tilraunir hafa verið gerðar af hálfu Sameinuðu þjóðanna til að mynda alþjóðlegar sveitir til liðsinnis hers og lögreglu á Haítí. Aðalframkvæmdastjórinn Antonio Guterres vill reyna það til þrautar og er sjálfur væntanlegur til Haítí í dag. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Íran Klerka­stjórn­inni mót­mælt í að­drag­anda lands­leiks Markús Þ. Þórhallsson Íranir í útlegð mótmæltu klerkastjórninni áður en fyrsti leikur landsliðsins á heimsmeistaramóti karla í fótbolta hófst í Los Angeles í Bandaríkjunum. Andstæðingurinn var Nýja-Sjáland. Einn mótmælenda ber derhúfu á höfði með kunnuglegu slagorði. EPA / TED SOQUI Mótmælendur báru skilti, veifuðu fánum og sögðu liðið ekki vera fulltrúa írönsku þjóðarinnar. Mótmælin voru þó friðsamleg að sögn erlendra fréttaveitna. Nokkur óvissa var um þátttöku Írana í mótinu vegna stríðsins við gestgjafana Bandaríkjamenn. Ellefu úr starfshópi liðsins var til að mynda meinað um vegabréfsáritun. Leiknum lyktaði með jafntefli, 2 - 2. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Í dag: Stór­leik­ur Frakk­lands og Sen­eg­al – Norð­menn mæta til leiks Fjórir leikir eru dagskrá heimsmeistaramóts karla í fótbolta í kvöld og í nótt. Sterkt lið Frakklands mætir Senegal sem voru Afríkumeistarar um stund í vetur þar til titillinn var dæmdur af þeim. Noregur mætir á stóra sviðið í fyrsta sinn síðan 1998. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Belarús Lúkasjenkó biður Zel­en­sky af­sök­un­ar og segist ekki ætla að beina spjót­um hers­ins að Úkra­ínu Markús Þ. Þórhallsson Alexander Lúkasjenkó, leiðtogi Belarús, segir enga hernaðarógn stafa frá landinu í garð Úkraínumanna. Alexander Lúkasjenkó forseti Belarús. Belta / EPA-EFE „Úkraína þarf ekki að óttast hernaðaraðgerðir af hálfu Belarús og enn síður af minni hálfu,“ sagði Lúkasjenkó í viðtali á sjónvarpsstöðinni Al Arabiya. Hann viðurkenndi að með þessari yfirlýsingu vildi hann bregðast við yfirlýsingum Úkraínuhers um að hann hefði um fimm hundruð skotmörk í Belarús í sigtinu. Lúkasjenkó bað jafnframt Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta afsökunar á öllum harðneskjulegum orðum sem hann hefði látið falla í hans garð. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Enn eitt jafn­tef­l­ið: Íranar og Nýs­já­lend­ing­ar deildu hlut í síðari leik G-riðils Íran og Nýja-Sjáland gerðu jafntefli í seinni leik í G-riðlinum á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Nýsjálendingar verða því að bíða um sinn eftir fyrsta sigrinum á heimsmeistaramóti. Eftir fyrstu umferð hafa öll lið riðilsins fengið eitt stig. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Yfir millj­arð­ur barna býr við meira en þrí­þætta vá af völdum lofts­lags­breyt­inga Þeim börnum sem búa við meira en þríþætta vá af völdum loftslagsbreytinga hefur fjölgað mikið frá aldamótum. Þau eru yfir milljarður. Næstum öll börn heimsins finna fyrir einhverjum áhrifum breytinganna. Ríflega 123 þúsund lifa við sjö ógnir. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Íran — Nýja Sjá­land Íranar og Nýsjálendingar skildu jafnir í síðari leik fyrstu umferðar í G-riðli heimsmeistaramótsins í fótbolta í nótt. Báðum leikjum riðilsins lauk því með jafntefli og allt var í járnum. Hér má sjá öll helstu atvikin úr viðureigninni. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Nýjar reglur um rétt­indi flug­far­þega vænt­an­leg­ar — hand­far­ang­ur verði inni­fal­inn í miða­verði Ríki Evrópusambandsins og Evrópuþingið sammæltust í gærkvöld um drög að nýjum reglum sem tryggja eiga aukin réttindi flugfarþega. Meðal annars skal handfarangur ætíð innifalinn í miðaverði. Samtök flugfélaga vara við að hækkanir fylgi. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Sádi Arabía — Úrúgvæ Sádi-Arabar og Úrúgvæjar gerðu 1:1 jafntefli í síðari leik fyrstu umferðar H-riðils á heimsmeistaramótinu í fótbolta. Öll fjögur lið riðilsins hafa því fengið eitt stig að lokinni fyrtu umferð. Hér má sjá helstu tilþrifin úr leiknum. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Pólland Rúss­nesk­ur skop­mynda­teikn­ari and­víg­ur Pútín skot­inn til bana Markús Þ. Þórhallsson Rússneskur listamaður og skopmyndateiknari sem hefur gagnrýnt Vladimír Pútín Rússlandsforseta harðlega var í gær skotinn til bana í Póllandi. Hinn myrti er sagður harður andstæðingur Vladimírs Pútín. AP/Pool Sputnik Kremlin / Vyacheslav Prokofyev Lögregla telur að manninum hafi verið brugguð launráð og hann myrtur að því er pólska fréttaveitan PAP greinir frá. Fréttaveitan NTB segir ódæðismanninn enn á flótta og ófundinn. Yfirvöld í Póllandi hafa ekki enn nafngreint hinn myrta en óháðir rússneskir miðlar segja hann vera hálffimmtugan skopmyndateiknara sem hefur hafst við í útlegð í Póllandi frá árinu 2021 og er þekktur fyrir að gera mjög hæðnisfullar teikningar af Pútín. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Fram­tíð Sunda­braut­ar og vand­ræði Herj­ólfs í brenni­depli Í Kastljósi ræddi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra samgönguáætlun, fyrirhuguð Fljótagöng og Sundabraut, auk þess sem staða Herjólfs og bráðabirgðalausn með Baldri til Vestmannaeyja var tekin fyrir. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Sádar og Úr­úg­væj­ar gerðu jafn­tefli í seinni leik H-riðils — öll liðin með eitt stig eftir fyrstu umferð Leik Sádí-Arabíu og Úrúgvæ í H-riðli heimsmeistaramótsins í fótbolta í kvöld lauk með jafntefli 1-1. Öll lið riðilsins hafa því hlotið eitt stig að lokinni fyrstu umferð. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Raf­magns­laust í Kjós og Hval­firði Markús Þ. Þórhallsson Norðurljós yfir Hvalfirði. Mynd úr safni. Wioleta Gorecka Vegna bilunar er rafmagnslaust í Kjós og Hvalfirði. Rafmagn fór af skömmu eftir miðnætti og samkvæmt upplýsingum RARIK er unnið að viðgerð og vonast til að rafmagn komi aftur á klukkan hálf þrjú. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Reitir áforma upp­bygg­ingu á nýj

Share this article