Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Mótorhjólaslys í Hafnarfirði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Slys Mót­or­hjóla­slys í Hafn­ar­firði Ragnhildur Helgadóttir Maður missti stjórn á mótorhjóli á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þriðja tímanum í dag. Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu er maðurinn slasaður en með fulla meðvitund. Þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 6 mínútumÍÞRÓTTIR Fótbolti In­fant­ino heldur sínu striki Gianni Infantino mun gefa kost á sér til endurkjörs sem forseti FIFA, þrátt fyrir að hann mæti mikilli andstöðu. Fyrir 34 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Fjöldi sól­skins­stunda vel yfir með­al­lagi í annars köldum ágúst Á Akureyri voru sólskinsstundir í ágúst 56 fleiri en í meðalári og í Reykjavík voru þær 32 fleiri. Vindur var hægur og veður að mestu gott að því er segir í yfirliti Veðurstofunnar yfir tíðarfar í mánuðinum. Hitinn var þó undir meðallagi. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Saga Fundu 255 ára gamlan skild­ing Sveins Páls­son­ar í Öræfum 255 ára skildingur frá náttúrufræðingnum Sveini Pálssyni kom óvænt í leitirnar í sumar þegar gönguhópur á ferð um Öræfin kom auga á hann. Skildingurinn er nú kominn á Þjóðminjasafn Íslands. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Ekkert óeðli­legt að ríkið sé hluti af sam­tal­inu Félags- og húsnæðismálaráðherra segir að stjórnvöld hafi ýmsar leiðir til að verja kjarasamninga eftir að forsendur þeirra brustu. Það verði þó aldrei á kostnað hallalausra fjárlaga. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Sjávarútvegur „Erfitt að vera í kjara­við­ræð­um þegar óviss­an er svona mikil“ Formaður Samtaka smærri útgerða segir kjaraviðræðum við Sjómannasamband Íslands miða vel áfram. Áform innviðaráðherra um breytingar á byggðakerfi fiskveiðistjórnarkerfisins geri viðræðurnar þó erfiðari. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Erill og nokkur ölvun á fjöl­mennri Ljósa­nótt – ung­menni kastaði flösku í lög­reglu­mann Yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum segist ekki muna eftir stærri Ljósanótt. Lögreglan segir að hátíðin hafi farið vel fram en talsvert var þó um ölvun ungmenna. Eitt þeirra grýtti glerflösku í lögreglumann. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Er­ind­rek­ar Trumps hefja við­ræð­ur við Zel­en­sky Erindrekar Bandaríkjaforseta eru komnir til Úkraínu eftir að hafa átt langan fund með forseta Rússlands í gær. Forseti Úkraínu tók á móti þeim í Kyiv í morgun og viðræður eru hafnar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húnabyggð Millj­arða upp­bygg­ing Bor­e­al­is á Blöndu­ósi Hljóðið í íbúum á Blönduósi er almennt gott þegar kemur að uppbyggingu Borealis Data Center við bæinn. Stærð gagnaversins tvöfaldast á næstu árum og skapar tugi nýrra starfa. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Rúm­lega 40 pró­sent hand­tek­inna út­lend­ing­ar Á þessu ári, fram að 24. júní, hafa fjörutíu og þrjú prósent handtekinna verið með erlent ríkisfang. Það er svipað hlutfall og árin þrjú á undan. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul við­vör­un á Suð­aust­ur­landi – Vega­gerð­in varar við hvass­viðri Guðmundur Atli Hlynsson Vegagerðin varar vegfarendur við miklu hvassviðri frá því í kvöld og fram á annað kvöld á Suðausturlandi, einkum í Öræfum. Aðstæður geta orðið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Gul viðvörun vegna veðurs verður í gildi á Suðausturlandi frá 21:00 í kvöld til 16:00 á morgun. Skjámynd / Veðurstofa Íslands Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að von sé á hvassri norðaustanátt og síðar norðanátt á Suðausturlandi með hviðum að 35 metrum á sekúndu. Hvassast verði frá miðnætti og fram undir hádegi á morgun. Gert er ráð fyrir að lægi annað kvöld. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Austurland Sam­band komið á í Mjó­a­firði Gert hefur verið við ljósleiðara sem fóru í sundur í Mjóafirði á föstudagsmorgun. Net- og símasamband komst á í firðinum laust fyrir miðnætti í gærkvöld. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Ferðaþjónusta Reykja­böð­in opnuð fyrir gesti í Hvera­gerði Baðlón við rætur Reykjadals í Hveragerði var opnað í gær. „Við finnum fyrir miklum áhuga,“ segir einn eigenda. Fyrir 5 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Sjónvarp 92 ára og keyrir um á rauðum blæju­bíl „Það er gaman að keyra og taka niður blæjuna. Það gerir mann dálítið ungan,“ segir hinn 92 ára Rúnar Guðbrandsson sem rúntar um Reykjavík á rauðum blæjubíl. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Slys Bíl­velta nærri Húsa­vík Ragnhildur Helgadóttir Bíll valt á Norðausturvegi skammt frá Saltvík, sunnan við Húsavík, skömmu eftir miðnætti. Einn hlaut lítilsháttar áverka. Þetta segir Heimir Heiðarsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. RÚV / Kristófer Óli Birkisson Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn fyrir að stela dósum úr gámi Maður var handtekinn fyrir að stela dósum úr gámi í miðborginni í kvöld eða nótt. Hann reyndist vopnaður hnífi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í allmörg útköll vegna ölvunar og slagsmála. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Storma­samt sumar og spill­ing­ar­mál sem skekja for­seta­skrif­stof­una Það gekk á ýmsu í úkraínskum stjórnmálum í sumar. Mótmæli brutust út þegar varnarmálaráðherra var vikið úr embætti. Síðar lagði hann til að haldnar yrðu kosningar. Þá hafa orðið vendingar í spillingarmáli sem teygir sig inn á forsetaskrifstofuna. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Lægð nálg­ast landið Lægð stefnir ört að landi með vaxandi norðaustan- og austanáttum. Hviður gætu farið yfir 20 m/s við fjöll á Suður- og Suðausturlandi. Hitinn verður á bilinu 6 til 16 stig. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Kjör­stað­ir opn­að­ir í Sax­l­andi-Anhalt þar sem AfD gæti tryggt sér meiri­hluta á þingi Kjörstaðir voru opnaðir klukkan átta í morgun að staðartíma í sambandslandinu Saxlandi-Anhalt í Þýskalandi. Kannanir benda til að harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland tryggi sér um 40% atkvæða og jafnvel hreinan meirihluta á þingi. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti „Ég er ekki nógu rugl­að­ur til þess að fá bolta í haus­inn“ Alex Unnar Hallgrímsson er upprennandi stjarna í handbolta sem bíður óþolinmóður eftir því að komast í atvinnumennsku. Hann hefur engan áhuga á að spila í markinu eins og stóri bróðir, Viktor Gísli Hallgrímsson, sem gefur litla bróður mörg góð ráð. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stóriðja Ál­verk­smiðj­an á Grund­ar­tanga nánast komin í fullan rekst­ur Álverksmiðja Norðuráls á Grundartanga hefur náð næstum fullum afköstum eftir að framleiðsla var stöðvuð í annarri kerlínu vegna bilunar í rafspennum. Þess vegna dróst framleiðsla saman um tvo þriðju hluta. Vel gekk að útvega varahluti. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­els­her gerir hefnd­ar­árás­ir á suð­ur­hluta Líban­ons Ísraelsher gerir loftárásir á suðurhluta Líbanons í hefndarskyni fyrir drónaárás Hezbollah á hersveitir á öryggissvæði á landamærum ríkjanna. Íbúum bæjar er sagt að forða sér vegna árása á vígi Hezbollah þar nærri. 6. september 2026 kl. 4:35ERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína Sendi­herra Banda­ríkj­anna sakar bresk stjórn­völd um gyð­inga­hat­ur Markús Þ. Þórhallsson Mike Huckabee er sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael. EPA / ALAA BADARNEH Sendiherra Bandaríkjanna í Ísrael, Mike Huckabee, sakar bresk yfirvöld um gyðingahatur eftir að utanríkisráðherrann Ed Milliband sagði stöðu almennings á Gaza vera skelfilega. „Bretar hafa farið yfir strikið. Gyðingahatur ríkisstjórnarinnar er stjórnlaust og hún tekur ekkert tillit til staðreynda,“ skrifaði Huckabee á X. Þetta gerðist eftir færslu Millibands á samfélagsmiðlum þar sem hann kvaðst hafa verið staddur á Gaza og fengið staðreynt að Ísraelsríki stöðvaði afhendingu lyfja og annarra nauðsynja og á sama tíma týndu börn lífi meðan þau biðu aðstoðar. Utanríkisráðuneyti Ísraels sagði ekkert hæft í því að lyf kæmust ekki til íbúa Gaza. 6. september 2026 kl. 3:40ERLENDAR FRÉTTIR Grænland Búist við að von der Leyen bjóði enn aukinn fjár­hags­stuðn­ing í tveggja daga heim­sókn Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kemur til Grænlands í dag og á morgun verður undirritaður samstarfssamningur sambandsins og grænlensku heimastjórnarinnar. Búist er við að hún bjóði aukinn fjárhagsstuðning. 6. september 2026 kl. 2:35INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Æv­in­týra­per­són­urn­ar við Odd­eyr­ar­götu fara í vetr­ar­hvíld á morgun Ævintýragarðinum við heimili alþýðulistamannsins Hreins Halldórssonar verður á morgun lokað fyrir veturinn. Þar má finna ævintýraverur af ýmsu tagi sem eru handverk Hreins. Hann er ánægður með sumarið þótt færri hafi komið í garðinn en fyrir ári. 6. september 2026 kl. 1:46ERLENDAR FRÉTTIR Argentína Milei hótar ol­íu­fyr­ir­tækj­um refsi­að­gerð­um starfi þau nærri Falk­lands­eyj­um Stjórnvöld í Argentínu boða viðurlög og refsingar gegn þeim olíufélögum sem starfa án leyfis nærri Falklandseyjum eftir að forseti landsins sagði í sjónvarpsávarpi vinda breytinga blása þannig að landið geti gert kröfu til eyjaklasans. 6. september 2026 kl. 0:13ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Støre: Geimskot­ið er bylt­ing fyrir Noreg Norski forsætisráðherrann segir landið hafa komist á spjöld sögunnar með velheppnuðu skoti geimflaugar í kvöld með gervihnetti innanborðs. Flaugin er hönnuð í samvinnu við þýskt sprotafyrirtæki og er sú fyrsta til að fara út í geim frá Vestur-Evrópu. 5. september 2026 kl. 23:33ERLENDAR FRÉTTIR Noregur Vil­hjálm­ur prins við jarð­ar­för Har­ald­ar kon­ungs fyrir hönd föður síns Samkvæmt venju verður Karl þriðji Bretakonungur ekki viðstaddur jarðarför frænda síns Haraldar Noregskonungs. Fyrir hans hönd fer Vilhjálmur prins. 5. september 2026 kl. 23:00INNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Átta ára stofn­uðu eigið fót­bolta­mót Átta ára strákar úr Garðabæ stofnuðu sitt eigið fótboltamót. Þar eru verðlaunin þrívíddarprentuð og vafaatriði í leikjunum eru metin með aðstoð farsíma, í stað VAR-dómgæslu. 5. september 2026 kl. 22:32ERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Sendi­menn Banda­ríkj­anna báru fjölda leiða til að ljúka stríð­inu undir Rúss­lands­for­seta Útsendarar Bandaríkjastjórnar ræddu við Rússlandsforseta

Share this article