Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.6.2026 | 10:16 Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Meirihlutinn leggur til hert skilyrði fyrir vindorkuframleiðslu. mbl.is/Sigurður Bogi Gunnlaugur Snær Ólafsson [email protected] Setja bókamerki Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis leggur til að vindorku verði sniðinn þrengri stakkur en nú er, raunar svo þröngur að ekki verði endilega unnt að reka vindorkuver nema samhliða annars konar orkuframleiðslu. Í nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, er vindorka færð undir skýran lagaramma rammaáætlunar og reynt að draga úr kerfislægum vandamálum sem geta fylgt óstöðugri orkuframleiðslu. Eins og fjallað hefur verið um síðustu vikur í Morgunblaðinu hefur vindorka haft í för með sér miklar áskoranir fyrir dreifikerfi í Evrópu sem hafa valdið auknum kostnaði sem velt er yfir á neytendur. Landsnet hefur lýst því yfir að nauðsynlegt sé að mæta þessum áskorunum. Aðgengi að jöfnunarorku Meirihluti nefndarinnar leggur til að lögfest verði krafa um að vindorkuver séu staðsett „nærri tengivirkjum og flutningslínum“. Með þessari breytingu er staðsetningarnálægð gerð að lögboðnu matsskilyrði. Verkefnisstjórn getur því fellt eða frestað verkefnum hreinlega á þeirri forsendu að þau liggi of langt frá núverandi innviðum, sem verndar pyngju neytenda fyrir dýrri offjárfestingu. Ekki er þó skilgreint hvað nákvæmlega felst í orðinu „nærri“. Annað sem hefur verið áskorun í tengslum við vindorkuna er óstöðugleikinn í framleiðslu vindorku sem gerir það að verkum að skyndilega verður ofgnótt af raforku, umfram það sem dreifikerfið ræður við. Meirihluti nefndarinnar telur nauðsynlegt að fela ráðherra að útlista í reglugerð að vindorkuver þurfi að sýna fram á að þau hafi aðgengi að nauðsynlegri jöfnunarorku til að tryggja stöðugt flæði í dreifikerfinu. Í tilfelli Vaðölduvers er ríkisfyrirtækið Landsvirkjun í þeirri einstöku stöðu að eiga fleiri vatnsaflsvirkjanir á sama svæði. Fyrirtækið getur því auðveldlega tryggt jöfnunarorku innanhúss með því að stýra vatnsaflinu í takt við vindinn. Fyrir sjálfstæða og smærri framleiðendur, sem eiga ekki stór miðlunarlón, gætu breytingar hins vegar orðið óyfirstíganlegar. Nýtt hæðarviðmið Í frumvarpinu um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun áttu reglur rammaáætlunar aðeins að ná til vindorkuvera sem væru 10 MW eða stærri. Umsagnaraðilar vöruðu því við bútasaumi orkuvera – þ.e.a.s. að aðilar gætu þá reist fjölda minni en samtals mjög umfangsmikla vindorkuframleiðslu sem slyppi þannig hjá rammaáætlun, en þó með tilheyrandi kerfisvanda. Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar leitast við að leysa þetta með því að lögfesta nýtt hæðarviðmið, þannig að rammaáætlun nái til allra vindorkumannvirkja sem í hæstu stöðu eru 30 metrar eða hærri. Þetta ákvæði er óháð uppsettu afli. Þekkt vandamál Landsnet hefur sagt að mikil aukning vindorku geti kallað á offjárfestingu í dreifikerfi eða tæknilausnum – svo sem stórum rafgeymum (BESS) eða sérstökum umriðlum – sem hækki flutningskostnað sem um sinn gæti lent á neytendum. Landsnet telur ekki ráðlegt að tengja fleiri ný vindorkuver en kerfið ræður við með góðu móti. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þvingaði eiginkonu sína í umfangsmikið vændi Kristrún náði góðum árangri á HM Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Mikilvægasta málið í samkomulagi við Bandaríkin Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kristrún bíður enn fundar með Trump Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Sigurgeir farinn af stað Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Þvingaði eiginkonu sína í umfangsmikið vændi Kristrún náði góðum árangri á HM Elísa Dögg nýr framkvæmdastjóri Leggja til verulega hert skilyrði fyrir vindorkuver Mikilvægasta málið í samkomulagi við Bandaríkin Umræðan Hjólað inn í framtíðina Hagsmunagæsla utanríkisráðherra gagnvart Bandaríkjunum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Úr sauðburðinum í stálið Seðlabanki gagnrýndi gjaldmiðlaskýrslu Hrinan í Bárðarbungu ódæmigerð Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Mest lesið Í gær Í vikunni Stungu af með kranabíl Þorgerður svarar Diljá Mist Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Spilin stokkuð upp á nýtt í Grindavik Kostnaður af evru gæti numið hundruðum milljarða Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar „Svo réð ég hvort ég hlustaði“ Sigurgeir farinn af stað Fátíður en sláandi atburður Árásin í húsi fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd Tugmilljarða áhrif á bankana fjóra Erlendir ferðamenn lentu í árekstrinum Svar ráðherra „jaðri við rugl“ Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Biðla til fólks að athuga með símtæki sín Einn stunginn með hnífi og þrír handteknir Formaðurinn veikur heima í atkvæðagreiðslu Ráðherra setur reglur um síma Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Óttast er að hundruð missi vinnuna Fátíður en sláandi atburður Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article