Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vindorka verði háð óskýrum skilyrðum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.6.2026 | 6:58 Vindorka verði háð óskýrum skilyrðum Að óbreyttu stefnir í hert leyfisskilyrði fyrir vindorkuver á Íslandi. Skilyrðin eru þó óljós og óútfærð sem talið er skapa óvissu og flækjur. mbl.is/Árni Sæberg Gunnlaugur Snær Ólafsson [email protected] Setja bókamerki Friðjón Þórðarson, framkvæmdastjóri Qair á Íslandi, kveðst harma það flækjustig og þá óvissu sem meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis hefur lagt til í frumvarpi um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun. Hann lýsir áhyggjum af því að stefnt sé að því að mismuna orkukostum. „Landsvirkjun var eini orkuframleiðandinn sem kallaður var fyrir nefndina og ber útkoman því miður keim af því.“ Meirihluti nefndarinnar hefur lagt til að breyta frumvarpinu þannig að ekki bara þurfi 10 MW vindorkuver að fara í rammaáætlun, heldur einnig að tekið verði upp nýtt hæðarviðmið upp á 30 metra. „Þetta útilokar það að nokkur reisi eina eða tvær vindmyllur við sinn bæ eða sitt fyrirtæki miðað við hvernig rammaáætlun hefur verið í framkvæmd. Þrjátíu metrar eru fráleit viðmið. Vindmyllur sem eiga að afla einhverrar orku þurfa að vera yfir þrjátíu metrar. Stærð spaðanna ræður miklu um aflgetu vindmyllu og þeir þurfa að vera í ákveðinni fjarlægð frá jörðu,“ segir Friðjón. Allt bundið Landsvirkjun? Þá setur hann einnig út á skilyrði nefndarinnar um að útlistað verði í reglugerð að vindorkuframleiðendur þurfi að sýna fram á aðgengi að jöfnunarorku til að mæta sveigjanlegri framleiðslu vindorkuvera. „Það er eitt fyrirtæki sem hefur aðgengi að öllum uppistöðulónum landsins og er með það í bígerð að bjóða jöfnunarorku sem söluvöru. Er okkur því nauðsynlegt að semja við Landsvirkjun til að eiga möguleika á að komast í nýtingarflokk?“ Friðjón vekur einnig athygli á því að ekki sé nægilega skilgreint hver viðmiðin eru gagnvart jöfnunarorku. „Er nægilegt fyrir okkur að sýna fram á jöfnunarorku með rafgeymum þannig að þeir safni orkunni þegar við framleiðum mikið og sendi síðan orku inn á dreifikerfið þegar við framleiðum minna? Telst þetta til jöfnunar? Þetta skil ég ekki hvernig þeir ætla að hafa. Besta jöfnunin er að hafa viðskiptavin sem getur aðlagað framleiðslu sína að orkuframleiðslunni. Telst það jöfnunarleið? Ég get ekki sýnt í rammaáætlunarferlinu fram á að við séum með slíkan viðskiptavin því við erum svo stutt á veg komin.“ Óskýr skilyrði Einnig þykir óljóst hvað meirihluti nefndarinnar á við með því að vindorkuver þurfi að vera nærri innviðum sem þegar eru fyrir. Friðjón bendir á að eitt verkefni fyrirtækisins sé í um 35 kílómetra í loftlínu frá næsta tengivirki, en það sé með öllu óljóst að mati hans hvort nærri í huga nefndarinnar séu 5 eða 50 kílómetrar. „Það er ekki gott að vita ekki að hverju menn ganga.“ Varðandi fuglalíf, sem þurfi að horfa til við þróun vindorkuvera, þá þurfi hugtök og viðmiðanir að vera skýr. Nefndin tali um alþjóðlega mikilvæg fuglasvæði sem séu hvergi skilgreind í lögum, merking þeirra óljós og engin opinber kortlagning liggi fyrir. Sama eigi við um óbyggð víðerni sem séu skilgreind í lögum þó kortlagning þeirra liggi ekki fyrir. Lýsir Friðjón vonbrigðum með breytingarnar sem hann segir í andstöðu við markmið lagabreytinganna sem lagðar voru fyrir nefndina. „Það er verið að flækja hluti með að hafa þá ekki nægilega skýra. Það var farið í þessa vegferð til þess að skerpa og skýra, en í meðferð nefndarinnar hefur það alfarið mistekist.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lítið sést til sólar á þjóðhátíðardaginn Baulað á Katrínu og börnin í skrúðgöngu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi „Rosalega auðvelt að vera bara sáttur“ Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Er ástæða til að fagna í dag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert sem bendir til geðræns vanda Skæð inflúensa olli miklu álagi Ríkið áfrýjar dómi í plastbarkamálinu Ýmis sóknarfæri til að mæta vaxandi blóðgjafaþörf Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Fánar dregnir að húni um allan bæ „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Myndir: Víkíngahátíðin hafin í 29. skiptið Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Lítið sést til sólar á þjóðhátíðardaginn Baulað á Katrínu og börnin í skrúðgöngu Sérsveitin kölluð til eftir að maður ógnaði með hnífi „Rosalega auðvelt að vera bara sáttur“ Aðsend grein: Er ástæða til að fagna í dag? Umræðan Megi Ísland ráða sínum málum Er ástæða til að fagna í dag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekkert sem bendir til geðræns vanda Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar í Reykjanesbæ Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Mest lesið Í gær Í vikunni Valdimar lætur af störfum Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Fánar dregnir að húni um allan bæ „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Áframhaldandi vegavinna í vikunni Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina „Við vorum samtímis forsetar í tvær vikur“ Myndir: Víkíngahátíðin hafin í 29. skiptið Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Steypireyðar snúa aftur til Skjálfandaflóa Stungu af með kranabíl Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Þorgerður svarar Diljá Mist Þrír fluttir með þyrlu eftir alvarlegt umferðarslys Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ Mikill meirihluti gesta Íslendingar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Kastaðist úr golfbíl eftir árekstur Lofaði konunni sinni að taka pásu Fría gosið farið úr Ameríkufluginu Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article