Hvalur hf. hyggst hefja veiðar á langreyð á ný í sumar eftir nokkurt hlé. Bjarni Benediktsson, þáverandi matvælaráðherra, gaf út leyfi til hvalveiða til fimm ára í desember 2024. Hvalur hf. nýtti sér ekki leyfið á síðasta sumri né heldur var veitt sumrin 2024 og 2023. Hvalur 8 og Hvalur 9 hafa bæði verið í góðri yfirferð og málun í Slippnum í Reykjavík og nú stefnir í að hvalvertíðin hefjist. Jón Páll Ásgeirsson var ekki lengi að festa þessi gömlu gufuknúnu skip á örflögu þar sem þau liðkuðu sig fyrir veiðarnar úti á Sundunum. Skipin voru smíðuð í Langesand í Noregi, Hvalur 9 árið 1952 og Hvalur 8 árið 1948. Þau hafa verið hluti af íslenska hvalveiðiflotanum og í eigu Hvals hf. frá árinu 1962 og 1966. Árin 1972 og 1973 voru skipin tekin á leigu af Landhelgisgæslu Íslands í öðru þorskastríðinu og þau vopnuð 57 mm byssu. Á árunum 1987 til 2006 lágu þau ónotuð við bryggju er hvalveiðar við Íslandsstrendur voru bannaðar.