Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrstu hvalirnir á leið í land

Read Full Article →

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur veitt tvær langreyðar og er á leið með þær í land. Dýrin voru skotin í nótt. Þetta eru fyrstu hvalirnir sem eru veiddir við Ísland frá árinu 2023 en ekkert varð af veiðunum í fyrra og hittiðfyrra. Hvalur hf. fékk leyfi til hvalveiða til fimm ára í desember 2024. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur boðað frumvarp um bann við hvalveiðum í vetur. Í ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar er lagt til að í sumar verði ekki veiddar fleiri en 150 langreyðar og 168 hrefnur. Mótmælandi kom sér fyrir í mastri Hvals 9 þegar báturinn var við bryggju í Reykjavíkurhöfn á fimmtudag. Skipið sigldi úr höfn með hann meðferðis og hann fór niður úr mastrinu við komu skipsins í Hvalfjörð um kvöldið. Bæði hvalveiðiskipin, Hvalur 8 og Hvalur 9, héldu til veiða á föstudagskvöld.

Share this article