Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þrjár virkjanir samþykktar í orkunýtingar­flokk

Read Full Article →

Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu um breytingu á áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, svonefndri rammaáætlun. Með ákvörðun Alþingis nú bætast þrír nýir virkjunarkostir í orkunýtingarflokk og tveir í biðflokk. „Virkjunarkostirnir sem Alþingi staðfesti í orkunýtingarflokk í dag geta samanlagt skilað nærri einni terawattstund af endurnýjanlegri raforku á ári verði þeir fullnýttir,“ segir í tilkynningu umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins. Virkjunarkostirnir eru Tröllárvirkjun og Skúfnavatnavirkjun á Vestfjörðum ásamt jarðvarmakostinum Bolaöldu á Hellisheiðarsvæðinu, en með ályktun sinni staðfestir Alþingi að virkjunarkostirnir geti farið áfram í leyfisveitingarferli samkvæmt gildandi lögum, að undangengnum frekari rannsóknum og mati eftir því sem við á. Með þingsályktuninni voru jafnframt Hvanneyrardalsvirkjun á Vestfjörðum og Hamarsvirkjun á Austurlandi settar í biðflokk. Sjá einnig Leggja til nýja virkjunarkosti Þessir virkjunarkostir koma til viðbótar þeim sem samþykktir voru í orkunýtingarflokk rammaáætlunar fyrr á árinu, þ.e. Skrokköldu, sem er með orkugetu um 392 GWst/ári, og Holtavirkjun, með orkugetu um 450 GWst/ári. „Alls geta orkukostirnir fimm skilað tæpum tveimur terawattstundum af endurnýjanlegri orku á ári.“ Þingsályktunin sem samþykkt var í dag byggir á vinnu verkefnisstjórnar 5. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar sem lagði mat á fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma, en rammaáætlun er ætlað að skapa fyrirsjáanleika um nýtingu orkuauðlinda landsins með heildstæðu frummati sem tekur bæði til umhverfissjónarmiða og samfélagslegra þátta.

Share this article