Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll

Read Full Article →

Íþróttir | mbl | 16.6.2026 | 15:34 Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll Samsett mynd/mbl.is/Sonja/Tölvuteikning/Þjóðarhöllin ehf. Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Þjóðarhöll Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Tillögur um nýja höll liggja fyrir Borga tvo milljarða fyrir lóð Þjóðarhöll ekki í umhverfismat » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og handboltaáhugamanneskja, fagnar framvindu uppbyggingaráforma Þjóðarhallar í Laugardal, en með ákvörðun Þjóðarhallar ehf. um að fela teymi Íslenskra aðalverktaka hf. að sjá um framkvæmd verkefnisins frá upphafi til enda sér loks fyrir endi á ferlinu, sem dregist hefur töluvert á langinn. „Þetta eru náttúrulega stórkostlegar fréttir og þessi framkvæmd kemur lika á svo hárréttum tíma,“ segir Þorgerður í samtali við mbl.is. „Þessi áform um að hefja framkvæmdir í haust eru góð fyrirheit, og boða gott fyrir handboltann, körfuna og fimleika og fleiri íþróttir og undirstrika um leið hvað við erum framarlega á mörgum sviðum sem íþróttaþjóð. Þannig að ég er bara alsæl, og alveg ótrúlega stolt af þessu.“ Frétt af mbl.is Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Frétt af mbl.is Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Dýrmætt fyrir margra hluta sakir Í gær var tilkynnt að Þjóðarhöll ehf. hefði samþykkt tilboð Íslenskra aðalverktaka hf. að framkvæmdinni, og samhliða því voru tölvuteikningar af húsinu kynntar. Áformað er að framkvæmdir við bygginguna hefjist í haust og að þeim ljúki á vormánuðunum 2030, en alls nemur áætlaður kostnaður við framkvæmdirnar 16,8 milljörðum. Þorgerður segir samstarfsfélaga sína í ríkisstjórn hafa rætt Þjóðarhöllina í morgun, og að þar hafi ríkt kampakæti yfir áformunum. Sjálf sé hún alsæl yfir þeim og jafnframt ótrúlega stolt. „Það vita það allir að ég er mikil handboltamanneskja, og ekki bara af því að ég er mamma Gísla. Ég hef sjálf tekið þátt í handbolta og á ýmsum sviðum og finn hvað þetta er gríðarlega miklvægt fyrir okkur sem þjóð,“ segir hún. „Þetta er svo dýrmætt fyrir margra hluta sakir og þetta er til dæmis hluti af því að vera tilbúin í heimsmeistaramótið í handbolta 2031 sem verður að hluta til haldið hérna heima.“ Frétt af mbl.is Ísland heldur HM 2031 Miklu máli skipti að vera með fyrirtaksaðstöðu þegar þar að komi og geta stolt tekið á móti einum milliriðli keppninnar þegar þar að kemur. Á myndinni má sjá tölvugerð af því hvernig handboltaviðureign í Þjóðarhöllinni kynni að líta út. Miklu máli skipti að vera með fyrirtaksaðstöðu þegar HM í handbolta rennur upp árið 2031 að sögn Þorgerðar. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Fjárfestingar í mannvirkjum skili sér í aukinni iðkun Aðspurð um það hvort hún telji að uppbygging þessa mikla leikvangs muni koma til með að kynda undir iðkun á þeim íþróttum sem höllin mun hýsa segist Þorgerður telja að handbolta-, körfubolta- og fimleikaiðkun muni tvímælalaust njóta góðs af höllinni. „Það hefur alltaf sýnt sig, ef við förum aðeins yfir söguna, að fjárfestingar í íþróttamannvirkjum hafa síðan skilað sér út í meiri notkun og við sáum það bara til dæmis þegar KSÍ fór að reisa litlu gervigrasvellina á sínum tíma,“ segir hún. Frétt af mbl.is Bjartsýnn á nýja þjóðarhöll Með tilkomu gervigrasvallanna segir Þorgerður ákveðna hugarfarsbreytingu hafa orðið meðal landans. mbl.is/Golli Það hafi haft með sér í för ákveðna hugarfarsbreytingu landans gagnvart fótboltaíþróttinni að nú væri hægt að iðka hana utandyra allan ársins hring, og að sögn Þorgerðar hefur einnig aukinnar íþróttaiðkunnar gætt þar sem knattspyrnuhallir hafa verið byggðar. „Núna mun þetta skref tvímælalaust hjálpa bæði handbolta og körfunni og fimleikunum líka, þannig að þetta eru spennandi tímar fyrir íslenskt íþróttalíf,“ segir hún og bætir því við að svo þurfi að halda áfram að styðja við íþróttirnar með ráðum og dáð. Frétt af mbl.is Byggingaráform um Þjóðarhöll óbreytt Þorgerður segir að skrefið muni tvímælalaust styðja við iðkun íþrótta á borð við handbolta, körfubolta og fimleika. Á myndinni má sjá tölvugerða svipmynd af því hvernig körfuboltaviðureign í Þjóðarhöllinni kynni að líta út. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Tengdar fréttir Þjóðarhöll Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Tillögur um nýja höll liggja fyrir Borga tvo milljarða fyrir lóð Þjóðarhöll ekki í umhverfismat » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Gerðu hana þá almennilega ljóta“ Gylfi skrifar undir nýjan samning Knattspyrnumaðurinn dæmdur í átta ára fangelsi Íranir komu tvisvar til baka Trump má endurtaka umdeilt atriði á HM Úrúgvæ slapp með skrekkinn gegn Sádi-Arabíu Áfall fyrir Englendinginn Nýtt nafn á lista Manchester United Þekkt HM-nafn tekur við Túnis Víkingar fengu erfiðasta dráttinn Rekinn eftir fyrsta leik á HM Fá ekki að ferðast til Bandaríkjanna Fylkir sendir frá sér yfirlýsingu Kynferðislegum athugasemdum beint að fjölskyldumeðlimum Draumabyrjun Svía á HM Van Dijk ómyrkur í máli Svíinn neitaði að fagna en lét svo gleðina í ljós á HM Óskar við Arnar: Segðu þetta bara eins og þetta er Fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum Sóknarmaður United hetjan í Philadelphiu Þjálfari Argentínu vill ekki spila gegn Íslandi Stórfyrirtækið laug að íslensku þjóðinni Messi tjáir sig um samskiptin við Daníel Myndskeið: Ofurhugi stökk niður Skógafoss Messi ekki lengi að skora gegn Íslandi Rekinn eftir fyrsta leik á HM Kvennalandsliðið harðlega gagnrýnt Daníel og Messi féllust í faðma eftir leik Markakóngurinn féll út um glugga Trump mætir ekki aftur Fleira áhugavert Fundi lokið: „Þungt og erfitt samtal“ Fátíður en sláandi atburður „Það myndast þarna smá vonarglæta“ Mega bíða eftir launagreiðslum frá Saga Film Mest lesið Í gær Í vikunni „Gerðu hana þá almennilega ljóta“ Gylfi skrifar undir nýjan samning Knattspyrnumaðurinn dæmdur í átta ára fangelsi Íranir komu tvisvar til baka Trump má endurtaka umdeilt atriði á HM Úrúgvæ slapp með skrekkinn gegn Sádi-Arabíu Áfall fyrir Englendinginn Nýtt nafn á lista Manchester United Þekkt HM-nafn tekur við Túnis Víkingar fengu erfiðasta dráttinn Rekinn eftir fyrsta leik á HM Fá ekki að ferðast til Bandaríkjanna Fylkir sendir frá sér yfirlýsingu Kynferðislegum athugasemdum beint að fjölskyldumeðlimum Draumabyrjun Svía á HM Van Dijk ómyrkur í máli Svíinn neitaði að fagna en lét svo gleðina í ljós á HM Óskar við Arnar: Segðu þetta bara eins og þetta er Fyrirliði KR úlnliðsbrotnaði á báðum höndum Sóknarmaður United hetjan í Philadelphiu Þjálfari Argentínu vill ekki spila gegn Íslandi Stórfyrirtækið laug að íslensku þjóðinni Messi tjáir sig um samskiptin við Daníel Myndskeið: Ofurhugi stökk niður Skógafoss Messi ekki lengi að skora gegn Íslandi Rekinn eftir fyrsta leik á HM Kvennalandsliðið harðlega gagnrýnt Daníel og Messi féllust í faðma eftir leik Markakóngurinn féll út um glugga Trump mætir ekki aftur Fleira áhugavert Aðgerðaáætlun vegna heilabilunar Þrír áfrýja til Hæstaréttar Lögreglumaður: Ming varð fyrir miklum vonbrigðum Fátíður en sláandi atburður

Share this article