Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll

Read Full Article →

Innlent | mbl | 19.6.2026 | 16:41 Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll Hildur segir að auðvitað þurfi að huga að bílastæðamálunum í framhaldi framkvæmda við Þjóðarhöllina. Samsett mynd/mbl.is/Hulda Margrét/Tölvuteikning/ÍAV Setja bókamerki Tengdar fréttir Þjóðarhöll Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Tillögur um nýja höll liggja fyrir » Fleiri tengdar fréttir Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, segir að skoða þurfi bílastæðamál í nágrenni fyrirhugaðrar Þjóðarhallar í sunnanverðum Laugardal og segir það koma til greina að fjölga bílastæðum á svæðinu þó gert sé ráð fyrir því í núverandi deiliskipulagi að þeim muni fækka. „Þetta er eitthvað sem þarf auðvitað að hugsa í framhaldi af framkvæmdum,“ segir hún í samtali við mbl.is. „Hvernig komum við fólki inn í höllina á stórviðburði og hversu mikið magn bílastæða er eðlilegt og nauðsynlegt að hafa? Hvernig ferjum við fólk síðan með almenningssamgöngum?“ Í kjölfar kynninga á áformum um fyrirhugaða Þjóðarhöll urðu bílastæðamál við höllina mörgum Facebook-notendum að umtalsefni, enda ljóst að bílastæðum á svæðinu myndi fækka með tilkomu Þjóðarhallar. Frétt af mbl.is Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Frétt af mbl.is Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Ekki gert ráð fyrir nýjum bílastæðum Í núverandi deiliskipulagstillögu Reykjavíkurborgar fyrir Þjóðarhallarsvæðið frá 7. mars 2024 kemur skýrt fram að ekki verði gert ráð fyrir nýjum bílastæðum á lóðinni, heldur muni þeim fækka frá núverandi horfi þar sem hluti þeirra bílastæða sem nú standa við Laugardalshöll muni falla undir stækkaðan byggingarreit. Helgi Geirharðsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar, sagði í samtali við mbl.is í vikunni að það væri undir borgaryfirvöldum komið hvort horfið verði frá þeim áformum að fækka bílastæðum á svæðinu, enda hafi ákvörðunin verið í höndum borgarinnar frá upphafi. Svigrúm væri þó til þess að byggja bílastæði á auðum svæðum í grennd við höllina þó ekki sé gert ráð fyrir því í gildandi deiliskipulagi. Frétt af mbl.is Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Gert er ráð fyrir því að bílastæðum muni fækka á svæðinu með tilkomu Þjóðarhallar. Tölvumyndir/ÍAV Fleiri lausnir en að fjölga bílastæðum Hildur segir fjölgun bílastæða þó ekki einu lausnina, enda ljóst að ef blásið yrði til 12.000 manna viðburðar í framtíðar-Þjóðarhöll væri engin leið fyrir alla að koma á bíl. „Þá þyrftum við að huga að fjöldaflutningum inn á svæðið sem við þekkjum til dæmis dæmi af frá nýlegum tónleikum Laufeyjar í Kópavoginum, og þar tókust fólksflutningar með almenningssamgöngum til og frá bílastæðum gríðarlega vel,“ segir hún. Aðspurð um það hvort borgarstjórn hyggist fjölga bílastæðum á svæðinu sjálfu og beita sér fyrir breytingum á fyrirliggjandi deiliskipulagi segir Hildur það eina sviðsmyndl. „Ég hugsa að við munum taka allar sviðsmyndir til skoðunar og reyna að komast að skynsamlegri niðurstöðu,“ segir hún. Tengdar fréttir Þjóðarhöll Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Tillögur um nýja höll liggja fyrir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Íranir frestuðu viðræðum vegna árása Ísraels Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll Útkall vegna slyss við Háafoss Ætlar að lita hárið sitt bleikt verði hann heimsmeistari Framlengja gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert 16 drepnir í loftárásum á Líbanon Lyfjalaus nanómeðferð gegn brjóstakrabbameini Vill yfirsýn yfir aðlögun og árekstra Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Lést eftir umferðarslys við Reykholt Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Áslaug Arna: „Enn ein staðfestingin“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Andlát: Þráinn Eggertsson Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Nýjast á mbl.is » Íranir frestuðu viðræðum vegna árása Ísraels Munu skoða að fjölga bílastæðum við Þjóðarhöll Útkall vegna slyss við Háafoss Ætlar að lita hárið sitt bleikt verði hann heimsmeistari Framlengja gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Umræðan Svona styrkjum við Ísland Raunávöxtun og raunskattlagning Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjórir ísraelskir hermenn drepnir Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu 16 drepnir í loftárásum á Líbanon Viðræðum Írans og Bandaríkjanna í Sviss frestað Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Þráinn Eggertsson Af hverju er fólk að selja miðana sína? Stóðu frammi fyrir einstakri áskorun Lést eftir umferðarslys við Reykholt Hlaupa í minningu Jóns Breka: „Var gleðigjafi allra“ Svarar óánægju: „Þetta er náttúrulega ekki útilega“ „Mun skila verulegum ávinningi fyrir samfélagið“ Flugvirkjar gefa grænt ljós á verkfallsaðgerðir Málningin fékk ekki að þorna: Ekki málað í sumar Áslaug Arna: „Enn ein staðfestingin“ Af hverju er fólk að selja miðana sína? Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Búinn að koma sér fyrir í hvalveiðiskipi 25 vildu verða sveitarstjóri Segir nær uppselt: Þingmenn taka lagið Hættir sem aðstoðarmaður Ölmu Af hverju er fólk að selja miðana sína? Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Andlát: Þráinn Eggertsson Fátíður en sláandi atburður Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“

Share this article