Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Reyna að ná samningi innan þriggja mánaða

Read Full Article →

Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) undirrituðu í dag sameiginlega yfirlýsingu um framhald kjarasamningsviðræðna. „Ákváðu báðir samningsaðilar að samþykkja tillögu ríkissáttasemjara að verkstýrðri verkáætlun undir friðarskyldu og verður unnið eftir henni þar til samningum er náð, en með það sem meginmarkmið að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamnings fyrir 15. september 2026.“ Þegar er búið að ákveða fundadagskrá fyrir júní, júlí og ágúst. Kjaradeilunni var vísað til Ríkissáttasemjara í apríl síðastliðnum. Kjarasamningar flugmannahafa verið lausir frá því í lok september 2025, en viðræðurnar hafa verið snúnar frá þeim tíma. Deilt hefur verið um mögulegar óformlegar verkfallsaðgerðir flugmanna í mánuðinum, en Icelandair hefur ítrekað þurft að aflýsa eða fresta flugferðum þar sem erfitt hefur reynst að manna áhafnir. „Aðilar eru sammála um að vinna saman í góðri trú að framgangi viðræðna og stuðla að uppbyggingu gagnkvæms trausts sín á milli. Á meðan á samningaviðræðum stendur skuldbinda aðilar sig til að standa saman að baki Icelandair, með það að markmiði að tryggja stöðugan og öruggan rekstur félagsins og vernda hagsmuni þess,“ segir í tilkynningunni. „Aðilar eru sammála um að flugmenn, stjórnendur og aðrir starfsmenn Icelandair séu í sama liði og vinni saman með hagsmuni félagsins að leiðarljósi.“

Share this article