Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Verkáætlun í viðræðum FÍA og Icelandair gekk ekki eftir

Read Full Article →

Áætlun Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair um að klára kjarasamninga fyrir daginn í dag gekk ekki eftir. Félögin sammæltust um það í júní að vinna eftir verkáætlun ríkissáttasemjara undir friðarskyldu. Markmið hennar var að ljúka viðræðum um endurnýjun kjarasamninga fyrir 15. september. Viðræðurnar eru enn í gangi. Þær hafa að sögn ríkissáttasemjara gengið ágætlega og hann kveðst bjartsýnn. Hvað er friðarskylda? Friðarskylda þýðir að þeir sem eru bundnir af kjarasamningi megi ekki knýja fram breytingar á því sem var samið um í honum með verkfalli. Þetta á við meðan samningurinn er í gildi en friðarskylda fellur úr gildi þegar hann rennur út, nema samið sé um annað. Ástráður Haraldsson segir ekki liggja fyrir hversu langt sé í land í viðræðunum og hefur ekki lagt fram tillögu um nýja tímaáætlun. „Meðan við erum í samtölum og getum átt jákvætt samstarf um verkefnið reynum við að halda áfram,“ segir hann. Fulltrúar flugmanna og Icelandair funduðu í gær og hittast aftur síðar í dag. Ríkissáttasemjari segir fólk viljugt að halda áfram og málin þokist í rétta átt.

Share this article