Týr heyrði viðtal við hagfræðing hjá VR í hádegisfréttum í síðustu viku. Hann heitir Viðar Ingason og hélt erindi á fundi VR, LÍV og Fagfélaganna um samspil verðbólgu og launa þann 11. júní. Þar fullyrti hann að launahækkanir umfram framleiðniaukningu hefðu lítil áhrif á verðbólgu. Viðtalið kom í kjölfar þess að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, reifaði svipaðar skoðanir í kvöldfréttatíma ríkismiðilsins. Týr veltir fyrir sér hvers vegna ríkismiðillinn telur fréttnæmt að básúna þeirri jaðarskoðun fulltrúa VR meðal hagfræðinga. Týr gerir sér grein fyrir því að hægt er að ímynda sér efnahagslegar aðstæður þar sem miklar launahækkanir hafa ekki mikil áhrif á verðbólgu, eins og þegar framleiðsluslakinn er mikill eða framlegð í rekstri er óvenjuhá. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift