Týr heyrði viðtal við hagfræðing hjá VR í hádegisfréttum í síðustu viku. Hann heitir Viðar Ingason og hélt erindi á fundi VR, LÍV og Fagfélaganna um samspil verðbólgu og launa þann 11. júní. Þar fullyrti hann að launahækkanir umfram framleiðniaukningu hefðu lítil áhrif á verðbólgu. Viðtalið kom í kjölfar þess að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, reifaði svipaðar skoðanir í kvöldfréttatíma ríkismiðilsins. Týr veltir fyrir sér hvers vegna ríkismiðillinn telur fréttnæmt að básúna þeirri jaðarskoðun fulltrúa VR meðal hagfræðinga. Týr gerir sér grein fyrir því að hægt er að ímynda sér efnahagslegar aðstæður þar sem miklar launahækkanir hafa ekki mikil áhrif á verðbólgu, eins og þegar framleiðsluslakinn er mikill eða framlegð í rekstri er óvenjuhá. Hvorugt á við um stöðuna á Íslandi í dag og þorri hagfræðinga gerir sér grein fyrir því að viðvarandi launahækkanir umfram framleiðniaukningu leiða aðeins til einnar niðurstöðu: viðvarandi verðbólgu. *** Ástæðan fyrir viðtalinu við hagfræðinginn var að sama dag og AGS kynnti niðurstöður úttektar sinnar stóð VR fyrir morgunverðarfundi sem fjallaði um þessa jaðarskoðun að launahækkanir umfram framleiðniaukningu hafi lítil áhrif á verðbólgu. Það vakti athygli Týs að Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, tók þátt í pallborðsumræðum á fundinum. Samkeppniseftirlitið gaf einmitt út furðulegt umræðuskjal í síðustu viku þar sem vöruverð á Íslandi var borið saman við vöruverð í Evrópu án þess að minnast í nokkru á kaupmátt og þá staðreynd að kaupmáttur ráðstöfunartekna er með því hæsta sem gerist hér á landi. *** Týr telur umræðuskjalið vera framlag Samkeppniseftirlitsins í kosningabaráttuna í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í ágúst. Skjalið er birt eftir að Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra Viðreisnar, lagði stofnuninni til 30 milljónir króna til að skoða dagvörumarkaðinn. Hver maður hefur sitt verð en sumir eru á hagstæðari kjörum en aðrir og allt það. Allt þetta sannfærir Tý um að það séu nákvæmlega engar líkur á öðru en að verkalýðshreyfingin rifti kjarasamningum við endurskoðun samninganna í haust. Týr er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 17. júní 2026.