Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skip um stýrisstamma uppi á bryggju

Read Full Article →

Óvenjuleg sjón blasti við vegfarendum á Grandanum fyrir skemmstu. Með stórvirkum krana hafði krókaaflamarksbáturinn Indriði Kristins BA verið hífður upp á Bótarbryggju og beið þar þess að starfsmenn Vélsmiðju Orms og Víglundar sinntu á honum viðgerð. Indriði Kristins er 29 tonna trefjaplastbátur, smíðaður af Trefjum hf. árið 2022. Hann er tæpir 12 metrar á lengd og hefur verið gerður út frá Tálknafirði. Hann komst í fréttirnar í byrjun árs 2025 þegar það spurðist út að Útgerðarfélag Reykjavíkur hefði keypt krókahlutdeild og krókaaflamark sem var á bátnum af Þórsbergi ehf. á Tálknafirði. Um var að ræða 1.477 þorskígildistonn og kaupverðið var 7,5 milljarðar króna. Þar með hvarf þessi kvóti frá Tálknafirði. Kaupir Þórsnes Nú hefur Guðmundur Kristjánsson, stærsti eigandi Útgerðarfélags Reykjavíkur og forstjóri Brims hf., bætt um betur því félag í hans eigu hefur keypt útgerðina Þórsnes í Stykkishólmi. Morgunblaðið hefur eftir Eggerti Halldórssyni, framkvæmdastjóra Þórsness, að stefnt sé að óbreyttri starfsemi í félaginu. 50-60 manns starfa hjá Þórsnesi. Þórsnes SH 109. Stærsti eigandi Þórsness var GPG á Húsavík með 40% hlut og Eggert átti sjálfur um 15%. Í kaupunum á fyrirtækinu fylgir kvóti. Úthlutun til Þórsness SH á yfirstandandi fiskveiðiári var 1.415 tonn í þorskígildum. Stýrisrammi gaf sig Svo aftur sé vikið að Indriða Kristins er rétt að taka fram að hann er í eigu félagsins Dynsala, Guðjóns Indriðasonar og Guðmundar Kristjánssonar, sem allir eiga jafnan þriðjungshlut. Stjórnarformaður Dynsala er Finnur Jónsson. Finnur segir ástæður þess að Indriði Kristins var þarna á Bótarbryggju að stýrisstammi í bátnum hafði brotnað. „Ég veit svo sem ekki um ástæður þessa og það er ekki vitað enn. Þetta gerðist fyrst fyrir um sex vikum og þá var hann tekinn upp. Talið er að öxullinn hafi skemmst þá en menn ekki tekið almennilega eftir því. Þetta var lagað og báturinn fór á sjó á ný en svo tók þetta sig upp aftur,“ segir Finnur. Högg fyrir staðinn Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segir að kvótasalan hafi verið mikið áfall fyrir atvinnulíf Tálknafjarðar. „Indriði hafði líka veitt hluta byggðakvótans sem var unninn á Patreksfirði. En kvótinn fór suður og það var mjög sorglegt og Tálknafjörður hefur orðið fyrir miklum skerðingum. Þetta þurfum við því miður að búa við,“ segir Gerður Björk. Byggðakvótinn í Tálknafirði er 240 tonn. Vesturbyggð sótti um að koma Tálknafirði inn í verkefnið Brothættar byggðir í ljósi einhæfs atvinnulífs og skorts á tækifærum í Tálknafirði fyrir atvinnuþátttöku. Umsóknin var samþykkt og hefur verkefnisstjóri verið ráðinn. „Það hafa komið sprotar upp úr svona verkefnum. Þetta eru ekki stórir peningar en þetta hvetur fólk áfram til góðra verka,“ segir Gerður Björk.

Share this article