Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Messi jafnaði markamet með þrennu á móti Alsír

Read Full Article →

Lionel Messi átti stórleik með argentínska landsliðinu og skoraði þrennu á móti engu marki Alsíringa á Kansas City-leikvanginum í nótt. Fyrsta mark hans kom á 17. mínútu leiksins, það næsta eftir hálfleik á 60. mínútu og það þriðja kom á 76. mínútu. Þetta er fyrsta heimsmeistaramótsþrenna Messi, en hann hefur skorað alls 16 mörk fyrir argentínska landsliðið á heimsmeistaramótum. Messi jafnaði þar með markamet Þjóðverjans Miroslavs Klose á lokakeppni HM. Argentína og Alsír eru í J-riðli mótsins. Hin liðin í riðlinum, Austurríki og Jórdanía, hófu sinn leik klukkan fjögur og er leikurinn sýndur á RÚV. Argentínska goðsögnin Lionel Messi brást ekki í leik Argentínu á móti Alsír í nótt. Hann skoraði þrennu og jafnaði þannig markamet á lokakeppni HM. Argentína vann 3-0.

Share this article