Messi byrjaði HM í ár á því að skora öll mörk Argentínu í 3-0 sigri á Alsír í fyrsta leik liðsins. Það voru 14., 15. og svo 16. mark hans á HM og jafnaði hann markamet Þjóðverjans Miroslav Klose. Skori Messi í dag, eða bara síðar á mótinu, bætir hann enn einni rósinni í hnappagatið og verður sá markahæsti frá upphafi. Sjötta HM - misjöfn markadreifing Lionel Messi er á sínu sjötta heimsmeistaramóti en markaskorunin fór rólega af stað. Hann skoraði eitt mark á HM 2006, enda þá enn táningur. 2010 var hann orðinn fyrirliði Argentínu en náði ekki að skora. Eftir tvö mót var uppskeran því aðeins eitt mark. 2014 tók hann við sér og skoraði fjögur mörk þegar Argentína fór alla leið í úrslit, en svo kom aftur dýfa og skoraði hann aðeins einu sinni í Rússlandi 2018. 2022 var Messi í svakalegu formi. Hann skoraði sjö mörk, fékk silfurskóinn, var valinn besti leikmaður mótsins og lyfti heimsmeistaratitlinum. Í ár skoraði hann þrjú mörk strax í fyrsta leik, sem er meira en á HM 2006, 2010 og 2018 samanlagt. Metið fallið hraðar í seinni tíð Nokkuð margir hafa náð að vera sá markahæsti frá upphafi á HM. Metið hefur þó fallið sífellt örar í seinni tíð og leikmenn leika á sífellt fleiri mótum. Just Fontaine frá Frakklandi átti metið býsna lengi. Hann skoraði 13 mörk á HM 1958 og er það enn metið yfir flest mörk á einu móti. Þýska markavélin Gerd Müller hirti það met á HM 1974 þegar hann skoraði 14. mark sitt og það met stóð svo í 32 ár. 2006 skoraði Ronaldo síðasta mark sitt á HM og það 15. frá upphafi. 8 árum síðar bætti Klose met Ronaldo og 12 árum eftir það er Messi búinn að jafna og getur slegið metið. Kylian Mbappe er líka nærri metinu. Hann er nú kominn með 14 mörk í aðeins 15 leikjum og á nóg eftir því hann er 11 árum yngri en Messi. Allir þessir leikmenn eiga það líka sameiginlegt að hafa spilað á fleiri mótum og í fleiri leikjum en fyrri methafar. Fontaine skoraði sín 13 mörk til að mynda í aðeins 6 leikjum á einu móti. Müller skoraði 14 mörk í 13 leikjum á tveimur mótum. Ronaldo og Klose skoruðu sín mörk á fjórum mótum og Messi er á sínu sjötta. Mbappe er „aðeins“ á þriðja móti sínu. Leikur Argentínu og Austurríkis er klukkan fimm í dag og sýndur beint á RÚV 2.