Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hefja nýtt vaxtarskeið á tvítugsafmælinu

Read Full Article →

Nox Medical fagnar tuttugu ára afmæli á þessu ári og að sögn Huldu Hallgrímsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins, er óhætt að segja að félagið hafi aldrei staðið frammi fyrir jafn fjölbreyttum tækifærum á alþjóðamörkuðum til að hjálpa fólki að ná betri svefnheilsu. „Á grunninum sem stofnendur og starfsfólk hafa lagt frá stofnun eru nú mikil tækifæri til staðar til að ná til enn fleiri viðskiptavina – og þar með fólks í þörf fyrir betri svefnheilsu. Einstakt vöruframboð félagsins er í stöðugri þróun og nýir möguleikar, ekki síst þegar kemur að nýtingu gervigreindar, munu leggja grunninn að næsta vaxtarskeiði,“ segir hún. Nox þróar, framleiðir og setur á markað lækningatæki í yfir 50 löndum sem eru notuð af læknum og heilbrigðisstarfsfólki til að mæla lífsmörk í svefni, greina og lækna svefnraskanir og svefnsjúkdóma. Hulda bendir á að rætur félagsins liggi djúpt í rannsóknar- og þróunarstarfi, í samstarfi við lykilstofnanir á Íslandi og erlendis á borð við háskóla, Landspítalann, og vísindafólk á starfsviði félagsins. Spurð um í hverju fyrrnefnd tækifæri eru helst fólgin segir Hulda að nýsköpunarstarf félagsins byggi á öflugu rannsókna- og þróunarstarfi. Það hafi verið driffjöður í innri vexti félagsins og myndað því sterkar undirstöður fyrir frekari vöxt. „Vegna þessara stöðugu fjárfestinga í gegnum árin er félagið búið að skapa sér einstaka samkeppnis- og aðlögunarhæfni á alþjóðamarkaði. Áframhaldandi rannsóknar- og þróunarstarf er forsenda frekari vaxtar og aukinnar markaðshlutdeildar í takt við framtíðaráform félagsins.“ Blóð, sviti og tár Nox dreifir framleiðsluvörum sínum í gegnum net alþjóðlegra dreifingaraðila og starfsstöðvar Nox í Norður-Ameríku en endanotendur að tækjum og tæknilausnum félagsins eru fagaðilar innan heilbrigðisstétta og fólkið sem það sinnir. Að sögn Huldu hefur tekið langan tíma og kostað blóð, svita og tár stofnenda og starfsfólks að byggja upp dreifileiðirnar, tengjast nýjum samstarfsaðilum og viðskiptavinum, með það að markmiði að bæta svefnheilsu fólks. Sveinbjörn Höskuldsson, einn stofnenda Nox Medical og núverandi tæknistjóri félagsins, fór yfir farinn veg í ræðu sinni í tuttugu ára afmælisfögnuði félagsins á dögunum. „Við vissum ekkert um fjármögnun, hvernig maður kemur á viðskiptatengslum eða setur upp dreifingu á lækningavörum. En það sem að við vissum frá Flögu tímanum var að við gátum búið til svefnlækningatæki á heimsmælikvarða og höfðum mjög skýra sýn á hverju þyrfti að breyta til þess að framþróa svefnlæknisfræðina,” sagði Sveinbjörn m.a. í ræðunni. Hann rifjaði enn fremur upp tímann þar sem stofnendur, með dyggum stuðningi fjárfesta, vina og vandamanna, náðu hverju markmiðinu á fætur öðru með lítið á milli handanna en óbilandi trú á verkefninu. „Að stofna fyrirtækið með sjö starfsmenn og engar tekjur, útvega styrki, koma á gæðaferlum, hanna nýja kynslóð svefnlækningakerfa og koma þeim í framleiðslu og á alþjóðlegan markað. Og við gerðum þetta bara. Lærðum á leiðinni, unnum okkur til óbóta en ekki síst sem mjög þétt og ákveðið teymi sem að tókst á við þessar áskoranir eins og einn maður. Allir vissu hvað var undir og gerðu bara það sem að þurfti að gera til þess að komast á áfangastað. Það var svo tæpum þremur árum eftir stofnun, í janúar 2009, að við sigruðum fjallið og fyrstu sendingarnar af þessu flaggskipi Nox, T3 mælitækinu með Noxturnal hugbúnaði, fóru í alþjóðlega dreifingu með bæði CE og FDA (Lyfjaeftirlit Bandaríkjanna) samþykki.“ Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið viðtalið í heild hér .

Share this article