Árið 2025 var gott ár í sögu Nox á Íslandi og nam hagnaður félagsins 4 milljónum evra, eða sem nemur um 580 milljónum króna. Hann lækkaði um 5,7 milljónir evra á milli ára vegna gengisáhrifa en hélst í takti við áætlanir. Rekstrartekjur jukust um 7,5% milli ára og námu tæplega 41 milljón evra, eða sem nemur tæplega 6 milljörðum króna. Störfum fyrirtækisins á Íslandi fjölgaði milli ára og voru þau 109 í árslok í fyrra. Stór hluti starfa hjá Nox eru sérhæfð tæknistörf á sviði heilbrigðistækni. Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri Nox Medical, bendir á að innan félagsins hafi byggst upp mikil og verðmæt þekking sem framtíðarvöxtur félagsins byggi á. „Hugvitsdrifin heilbrigðistækni, eins og sú sem Nox setur á markað, skapar verðmætar útflutningstekjur fyrir íslenska hagkerfið. Þá fellur starfsemin vel að áherslum sem birtast í atvinnustefnu stjórnvalda og tíu ára vaxtaplani. Þar er meðal annars horft til þess að efla heilbrigðistækni og útflutningstekjur vegna hennar og mun Nox halda áfram að leggja af mörkum í þá þróun.“ Árangurinn árið 2025 styrki enn frekar stöðu félagsins og opni ný sóknarfæri á lykilmörkuðum á komandi árum. „Vöxturinn hjá Nox hefur byggt á rannsóknum sem hófust fyrir meira en tveimur áratugum. Þörfin á markaðnum fer vaxandi fyrir það sem Nox hefur þróað og hefur fram að færa, meðal annars til að greina kæfisvefn og meðferðir við honum. Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað um allan heim þegar kemur að ótvíræðu forvarnargildi góðs svefns fyrir hinu ýmsu sjúkdóma og heilsukvilla.“ Að sögn Huldu hefur mikil gróska verið á þessum markaði að undanförnu og ný lyf til meðferðar á svefnröskunum á borð við kæfisvefn við sjóndeildarhringinn, enda þörfin mikil til mæta vaxandi biðlistum eftir meðferð og tryggja að allir fái meðferð við hæfi. Heilbrigðistækni og lækningatæki eins og Nox setur á markað muni svara kalli eftir bæði einföldum og aðgengilegum lausnum, sem og hátæknilegum lausnum. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .