Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Allt það helsta: Portúgal - Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Read Full Article →

Lýðstjórnarlýðveldið nær sögulegu stigi í dag en leikurinn gegn Portúgal endaði 1-1. Joao Neves kom Portúgal yfir snemma leiks og útlitið svart fyrir Kongó. Hins vegar voru Portúgalar bitlausir það sem eftir var þrátt fyrir að nær eigna sér boltann. Liðið var um 75% með boltann. Yoanne Wissa jafnaði metin undir blálok fyrri hálfleiks með góðu skallamarki. Kongó var áður með á HM 1974 undir nafninu Zaire. Þá tapaði liðið 9-0 gegn Júgóslavíu, 0-3 gegn Brasílíu og 0-2 gegn Skotlandi. Þetta er því einnig fyrsta markið þeirra á HM. Úrslitin galopna riðilinn en í nótt mætast Úsbekistan og Kólumbía.

Share this article