Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Kólumbía og Portúgal áfram í 32-liða úrslit

Read Full Article →

Leikur Kólumbíu og Portúgal endaði með 0-0 jafntefli á leikvanginum í Miami í nótt. Kólumbía er efst í K-riðli með 6 stig og Portúgal er með 4 stig eftir leik kvöldsins. Bæði liðin eru því örugg áfram í 32 liða úrslit. Þjálfari Kólumbíu, Nestor Lorenzo, var ánægður með sína menn þrátt fyrir jafnteflið. Á fréttavakt FIFA um leikinn segir Lorenzo liðið hafa spilað frábæran leik frá upphafi til enda og þeir hafi átt það skilið að vinna. Lorenzo óskar liðinu til hamingju með alla þá vinnu sem það setti í leikinn og segir þá hafa verið framúrskarandi góða í leiknum. Lorenzo segir að Portúgalar séu með frábært lið og frábæran þjálfara, en í dag hafi Kólumbíumenn verið betri en þeir. Portúgal mætir Króatíu á fimmtudag og Kólumbía mætir Gana á föstudag.

Share this article