Innlent | mbl | 18.6.2026 | 10:43 Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Dagur segir það marka stóran áfanga í framkvæmdinni að loks sé búið að velja verktaka til þess að sinna byggingu Þjóðarhallarinnar. Samsett mynd/Tölvuteikning/Þjóðarhöllin ehf./mbl.is/Kristinn Magnússon Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Þjóðarhöll Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Tillögur um nýja höll liggja fyrir Borga tvo milljarða fyrir lóð » Fleiri tengdar fréttir Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur og sitjandi þingmaður Samfylkingarinnar, segir það mikil gleðitíðindi að loksins sjái fyrir upphaf byggingarframkvæmda við Þjóðarhöll í Laugardalnum í Reykjavík, þó að hann hafi búist við því að ferlið gengi töluvert hraðar fyrir sig. „Ég segi bara loksins, loksins! Ég var mjög ánægður að frétta af þessu, því að svona verkefni eru stór og flókin og taka tíma, og sérstaklega þessir útboðs- og innkaupaferlar,“ segir Dagur í samtali við mbl.is. „Það er rosalega stór áfangi að þetta sé komið á þennan stað að það sé búið að velja bestu tillöguna, velja verktakann og hönnuðina sem einhenda sér núna í lokafráganginn á sínu verki svo framkvæmdin geti byrjað í haust.“ Frétt af mbl.is Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Frétt af mbl.is Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Býst ekki við frekari framkvæmdatöfum Aðspurður segist Dagur hafa búist við því að ferlið gengi hraðar fyrir sig, en að úr þessu búist hann ekki við því að framkvæmdirnar muni tefjast frekar. „Já, það er engin spurning um það. Bæði tók svolítið lengri tíma að ná samningum milli ríkis og borgar um það hver ætti að borga hvað og hvernig eigi að standa að rekstrinum,“ segir hann og bætir því við að í rauninni hafi flestar spurningar vaknað í kringum rekstrarfyrirkomulagið. Þeim spurningum hafi þó að miklu leyti verið svarað þegar góð fyrirmynd að höllinni fannst í Þrándheimi í Noregi þar sem ný íþróttahöll var einmitt byggð við hlið eldra húss og þau rekin saman. Frétt af mbl.is „Við erum ekki að finna upp hjólið“ Þjóðarhöllinni var fundin fyrirmynd í Þrándheimi í Noregi, en hér gefur að líta tölvuteiknaða svipmynd af því hvernig handboltaleikir í höllinni kynnu að líta út. Tölvuteikning/Þjóðarhöll ehf Bæði íþróttahreyfingunni og ungmennum til góða Með þrándheimsku höllina að fyrirmynd hafi verið hægt að búa til margþætt líkan um starfsemi hallarinnar. „Þegar svoleiðis módel var skoðað sást að til dæmis æfingatímar fyrir börn og unglinga í Laugardalnum munu tvöfaldast með tilkomu þessara húsa, jafnvel þó það sé gert ráð fyrir landsliðum og viðburðum og svo framvegis,“ segir Dagur. Höllin muni þannig bæði svara þörf borgarinnar og landsins fyrir landsleikja- og stórviðburðaaðstöðu og þörfum barna og ungmenna í hverfinu. „Þetta er alveg frábær blanda,“ segir Dagur að lokum. Frétt af mbl.is Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll Tengdar fréttir Þjóðarhöll Þorgerður Katrín í sjöunda himni yfir Þjóðarhöll Segir framkvæmdir hefjast í haust og ljúka 2030 Myndskeið: Svona mun ný Þjóðarhöll líta út Tillögur um nýja höll liggja fyrir Borga tvo milljarða fyrir lóð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þörf á umboðsmanni brýn Ronaldo ekki skorað í tíu leikjum í röð Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Vilja friða 4,3% af efnahagslögsögunni Photos: National Day celebrated across Iceland Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þeir sem stöðva svona skilja ekki tæknina“ Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní Ríkisstjórnin „secreti“ sig í gegnum fjármálaáætlunina Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Samkeppnishæfni Íslands minnkar Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Þörf á umboðsmanni brýn Ronaldo ekki skorað í tíu leikjum í röð Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Vilja friða 4,3% af efnahagslögsögunni Photos: National Day celebrated across Iceland Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Minni skortur en í ESB Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Samkeppnishæfni Íslands minnkar Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó