Innlent | Morgunblaðið | 18.6.2026 | 11:04 Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum Hekluhúsið á Laugavegi verður rifið og er það hluti af uppbyggingu á Heklureitnum á Laugavegi 174. Gert er ráð fyrir bílastæðum í kjallara. mbl.is/sisi Óskar Bergsson [email protected] Setja bókamerki Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur samþykkt niðurrif Hekluhússins við Laugaveg 174. Húsið er 5.620 fermetrar og hýsti starfsemi bílaumboðsins Heklu í áratugi. Samkvæmt deiliskipulagi verða byggðar þarna íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis, u.þ.b. 20 þúsund fermetrar ofanjarðar auk bílastæða í kjallara. Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri M3 fasteignaþróunar, segir að Hekla verði þarna út júlí með húsnæðið á sínum snærum og reiknar með að niðurrif geti hafist í ágúst. Spurður hvað byggðir verða margir fermetrar á lóðinni segir Örn að húsin liggi yfir fleiri en eina lóð þannig að það sé erfitt að segja nákvæmlega til um það. „Húsnæðið er í nokkrum húshlutum. Það sem verður rifið er um 5.000 fermetrar og það sem á að byggja er um 20.000 fermetrar. Við erum búin að byggja tvö hús af fimm sem heimilt er að byggja á Heklureit. Það er auðvitað gert ráð fyrir bílakjöllurum undir húsunum eins og í húsunum númer 168 og 170. Heildarbyggingarmagn á Heklureitnum er um 40.000 fermetrar.“ Og hvenær byrjið þið svo að byggja? „Miðað við niðurrif ágúst /september og hönnunarferli í framhaldi af því gætu framkvæmdir hafist síðla vetrar eða í upphafi árs 2027.“ Hvernig gengur að selja? „Það er hæg sala í nýbyggingum en það er ekki alveg stopp og við höfum náð að selja íbúðir úr okkar húsum, en það er hægara en verið hefur eins og fólk hefur séð á markaðnum. Nú erum við að sigla inn í seinnipartinn í júní og byrjun júlí sem hafa oft verið rólegir mánuðir og svo sjáum við til hvort markaðurinn taki ekki aftur við sér með haustinu eins og algengt er.“ Eru það háir vextir sem stjórna þessu og hafa hægt á sölunni? „Vaxtastigið spilar eitthvað inn í, en það eru líka lánaskilyrði Seðlabankans sem stýra þessu mikið frekar. Fólk sem vill kaupa og á eigið fé fær ekki lán vegna þröngra lánaskilyrða. Ég hugsa að það sé stærsti bremsuklossinn á markaðnum. Fólk hefur áður verið í þeim sporum að kaupa húsnæði og taka lán á svipuðum vöxtum og nú er.“ Örn segir fólk á leigumarkaði borga 350-400 þúsund í leigu á mánuði en megi ekki borga 250-300 þúsund í afborgun af húsnæði. „Mér finnst það eitthvað skrýtið og ég held að það sé alveg ljóst að þessi lánaskilyrði sem Seðlabankinn herti á sínum tíma eru að stoppa þetta.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fjölmiðlar gagnrýna harðlega áróðursbrögð Trumps Staðfesta komu Liverpool-mannsins Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum Stofnframlög til leigufélaga hækkuð Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Samkeppnishæfni Íslands minnkar Náðu góðri lendingu eftir ókyrrðina Arnhildur nýr borgarlistamaður Reykjavíkur Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Samkeppnishæfni Íslands minnkar Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Fjölmiðlar gagnrýna harðlega áróðursbrögð Trumps Staðfesta komu Liverpool-mannsins Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum Stofnframlög til leigufélaga hækkuð Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Samningur Bandaríkjanna við Íran birtur Ríkisstjórnin „secreti“ sig í gegnum fjármálaáætlunina Dagur fagnar höllinni: „Loksins, loksins!“ Hvað vissi aðstoðarkona Epsteins? Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Aflýstu 17. júní vegna veðurs Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Minni skortur en í ESB Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Hélt að allir væru að fagna afmæli hans á 17. júní „Ég kem til þín uggandi, þrasgjarna þjóð“ Samkeppnishæfni Íslands minnkar Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó