Innlent | mbl | 17.7.2026 | 22:20 | Uppfært 18.7.2026 11:42 Sögulegt hús í nýjum búningi Eftir langa vegferð er áætlað að dyrnar að Laugavegi 1 verði opnaðar á næsta ári í nýrri mynd. Samsett mynd/Davíð Kristján Pitt/Sisi Markús Ívar Halldórsson [email protected] Setja bókamerki Laugavegur 1 er hús sem á sér ríka sögu og er með eldri húsum í Reykjavík sem staðið hafa á sínum upprunalega stað þar til nýlega. Húsið hefur nú verið tekið í sundur og samkvæmt plani má búast við að dyrnar opnist á ný fyrir 17. júní 2027. Þá verður þar opnuð verslun Icewear en það eru einmitt eigendur Icewear sem standa fyrir endurgerð hússins. Verslunin verður um 660 fermetrar og á efri hæðinni verða íbúðir; alls verður húsið tæplega 900 fermetrar. Húsið við Laugaveg 1 var upprunalega byggt árið 1848 af Gustav Ahrenz trésmið og malara. Hann seldi síðan húsið og í því bjó Jón Pétursson yfirdómari og dómstjóri ásamt fjölskyldu sinni til ársins 1903. Húsið hefur hýst verslunarstarfsemi frá árinu 1915 og er því elsta verslunarhúsnæðið við Laugaveg. Svona er útlitið á Laugavegi 1 í dag. mbl.is/sisi Viðhalda ásýnd götunnar Ágúst Þór Eiríksson, aðaleigandi Icewear og stjórnarformaður, segist í samtali við mbl.is hafa keypt húsið árið 2014 en endurgerð hússins hefur verið unnin með Davíð Kristjáni Pitt, arkitekt. Húsið er verndað og fljótlega eftir kaupin hófst hugmyndavinnan að því hvernig mætti gera „stærri og flottari verslun en samt viðhalda upprunalegu útliti hússins og ásýnd götunnar, sem var friðuð“, segir Ágúst. Eftir dágóðan tíma hefur tekist að hanna reitinn, í samstarfi við Minjastofnun, þannig að upprunaleg götumynd haldist. Laugavegur 1 er einn fjölfarnasti punktur Reykjavíkur, þar mætast Laugavegur, Bankastræti og Skólavörðustígur. „Þetta verður mikil prýði fyrir miðbæinn þegar húsið verður komið í gagnið, þetta hús á sér merka sögu og það verður svakalega gaman að endurgera þetta í sínum upprunalega stíl," segir Ágúst. Gaman sé að gera hluti sem standist tímans tönn. Svona leit Laugavegur 1 út áður en húsið var tekið í sundur. mbl.is/sisi Munur á að rífa niður og að taka í sundur Í samtali við mbl.is segir Davíð Kristján Pitt, arkitekt, að fyrirhugað útlit hússins sé í takt við breytingar sem gerðar voru á því í kringum árið 1915 þegar því var breytt í verslunarhúsnæði. Hann gerir greinarmun á því að taka hús í sundur og að rífa það niður. „Þegar maður er að vinna með svona gömul hús er stundum hægt að taka þau í heilu lagi, flytja þau og gera þau upp,“ segir Davíð. Í þessu tilviki hafi það hins vegar ekki verið hægt. Því hafi ekki verið ástæða til að taka húsið í heilu lagi, en þeir hlutar hússins, sem verða nýttir í endurgerðinni, hafa verið fluttir í geymslu í Hafnarfirði. Upprunalegt gólf, jarðhæðin að mestu leyti og burðarstoðir höfðu allar verið endurnýjaðar í fyrri framkvæmdum. Það var raunar bara risið sem var eftir af því sem var upprunalegt í húsinu. Sjá má að fyrirhugað útlit hússins heldur upprunalegum svip þess. Davíð Kristján Pitt Húsið fær að njóta sín Meðal breytinga í endurgerð hússins má nefna endurkomu steinskífa sem prýddu upprunalega húsið, þ.e. svokallaðra „kálfa“. Þeir verða dregnir inn beggja vegna hússins og þannig mun húsið njóta sín betur, að sögn Davíðs. Þannig nær framhluti hússins að halda sínum upprunalega svip á meðan að húsið er stækkað töluvert að aftan og verður með kjallara til að hýsa starfsemina sem þar verður. Húsinu hefur verið mikið breytt í gegnum tíðina en þetta er í fimmta sinn sem það er gert alveg upp, telur Davíð. „Það er eðlilegt að hlutirnir taki breytingum með nýrri notkun og nútímanum.“ Húsið verður áfram friðað eftir breytingarnar og er þetta því líklega í síðasta skipti sem því verður breytt. Þegar húsið verður tilbúið verður hægt að koma þangað og sjá nokkurs konar sýningu um sögu þess, þó ekki sé búið að útfæra hana endanlega. Dr. Sólveig Guðmundsdóttir Beck fornleifafræðingur og Fornleifastofnun Íslands hafa meðal annars unnið að uppgreftri við húsið og fundist hafa munir sem verða þá til sýnis í húsinu þegar þar að kemur. Beggja vegna hússins eru svokallaðir „kálfar“ dregnir inn sem Davíð segir gera það að verkum að húsið njóti sín betur. Davíð Kristján Pitt Sjá má að húsið heldur sínum upprunalega svip að framan og töluverð stækkun er á verslunarrými fyrir aftan það. Davíð Kristján Pitt Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Úrkomumet fallið í höfuðborginni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga "There's simply no better place to be than the Westman Islands" Messi orðlaus: Þessi mynd er ótrúleg Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gerðu árásir sjöunda daginn í röð Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Enginn kennari metur stöðu nýnema mjög góða Viðvarandi vandamál í áratugi Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búningi Vill skoða endurgerð gatnamóta Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Einn stór turn í stað þriggja minni Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Netverslun með áfengi í boði ráðherra Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Hiti áfram yfir 20 stig Áfram unnið að varanlegri lausn Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Úrkomumet fallið í höfuðborginni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga "There's simply no better place to be than the Westman Islands" Messi orðlaus: Þessi mynd er ótrúleg Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Viðartittlingur kallar á nefndarálit Stúlkan er fundin heil á húfi „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Sögulegt hús í nýjum búningi Vill skoða endurgerð gatnamóta Aldargömul umræða: „Við þurfum bara jákvæðni“ Einn stór turn í stað þriggja minni Ný móttökumiðstöð Terra opnuð Netverslun með áfengi í boði ráðherra Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Hiti áfram yfir 20 stig Áfram unnið að varanlegri lausn Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“