Rekstrarniðurstaða A-hluta Reykjavíkurborgar á fyrsta ársfjórðungi var neikvæð um tæplega 4,6 milljarða króna. Afkoman var nærri 1,6 milljörðum króna lakari en áætlað var, en þó 844 milljónum króna betri en á sama tímabili í fyrra. „Helstu frávik voru í nettó fjármagnsgjöldum sem voru 1.527 milljónum króna yfir áætlun og rekja má til hærri verðbólgu á tímabilinu en gert var ráð fyrir í áætlun,“ segir í tilkynningu borgarinnar. Rekstrartekjur hækkuðu milli ára um 3 milljarða króna milli ára og námu 51 milljarði króna. Rekstrargjöld jukust um 289 milljónir króna og námu 48,9 milljörðum króna. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var jákvæð um 2.167 milljónir króna, sem er 2.759 milljónum króna betri niðurstaða en á sama tímabili í fyrra. EBITDA-afkoman var þó 82 milljónum króna lægri en gert var ráð fyrir í áætlun. Nettó fjármagnsgjöld námu rúmum 4,1 milljarði króna á fyrsta ársfjórðungi, samanborið við 2,4 milljarða á sama tímabili í fyrra. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir að nettó fjármagnsgjöld yrðu rúmir 2,6 milljarðar króna.