Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Blöðrur, candyfloss og flugeldar

Read Full Article →

Birgitta Haukdal x Herra Hnetusmjör – Flugeldar Þjóðhátíðarlagið í ár er komið út og er að þessu sinni í flutningi poppstjörnunnar Birgittu Haukdal og rapparans Herra Hnetusmjörs. Slagarinn heitir Flugeldar og er eftir Herra Hnetusmjör og Þormóð Eiríksson. Þormóður, Huginn og Úlfur úlfur – Meira Tónlistarmaðurinn Þormóður fer víða í ár. Hann sendi frá sér plötuna Meira um miðjan mars og á henni er lagið Meira þar sem hann fær félaga sína Hugin og Úlf úlf í heimsókn. Undiraldan fimmtudaginn 18. júní Sumarslagararnir streyma inn í pósthólf Rásar 2 þessa dagana og meðal þeirra sem heyrast þessa vikuna eru Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal, Kristmundur Axel og Friðrik Dór og mörg fleiri. Kristmundur Axel & Friðrik Dór – 1800 mílur Lagið 1800 mílur er að finna á plötunni Íslenski draumurinn með Kristmundi Axel sem kom út í lok febrúar. Á plötunni er að finna nokkra stóra dúetta meðal annars með Bubba, Herra Hnetusmjöri og GDRN en í 1800 mílum er það Friðrik Dór sem tekur í hljóðnemann. Stebbi JAK – Dönsum inn í hljóða nótt Lagið Dönsum inn í hljóða nótt með Stebba JAK var samið í kjölfar spjalls við Prins Póló. Þeir báru saman bækur sínar um hvernig væri best að semja lög og texta. Aðferð Stebba var alltof flókin að mati Prins Póló. Lagið er á væntanlegri sólóplötu Stebba JAK sem ber titilinn Líttu í kringum þig og kemur á streymisveitur mánudaginn 29. júní. Bryndís – 4AM Bryndís gaf út sitt fyrsta lag í fyrra og hefur vakið athygli á TikTok og Instagram. Nýjasta útspil hennar er 4AM sem er frumsamið og unnið með Stefáni Erni Helgasyni Íkorna. Theodóra – Nokkur lítil skordýrabit Lagið Nokkur lítil skordýrabit er um íslenskt sumar og hvernig skap Íslendinga breytist þegar sólin fer loksins að skína. Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir, eða bara Theodóra, er söngvari, lagahöfundur, textahöfundur og aðalflytjandi lagsins. Með henni spila Ásgeir Helgi Ásgeisson á gítar, Emil Logi Heimisson á píanó, Halldór Gauti Tryggvason á bassa og Helgi Geirsson á trommur. Kyrr – Allt líður hjá Allt líður hjá er sjötti singúll íslenska rafrokkbandsins Kyrr, og kom út 9. júní. Lagið er stórdramatískt þar sem víð hljóðrými leiða upp í tilfinningalegt hámark. Textinn fjallar í myndmáli um kvöldsólarlagið, augnablikin sem virðast stöðvast rétt áður en þau hverfa. Undiraldan þriðjudaginn 16. júní Sumarslagararnir streyma inn í pósthólf Rásar 2 þessa dagana og meðal þeirra sem heyrast þessa vikuna eru Herra Hnetusmjör og Birgitta Haukdal, Kristmundur Axel og Friðrik Dór og mörg fleiri. Hipsumhaps – Meðal mannsins (þjóðsöngurinn) Fjórða breiðskífa Hipsumhaps, Algrím hjartans, hefur verið í smíðum síðustu misseri og kom út 17. júní. Á plötunni eru 12 ný lög frá Fannari, þar á meðal er opnunarlagið Meðal mannsins. Steinunn Jónsdóttir – Spóla til baka Spóla til baka er fjórða smáskífan af fyrstu sólóplötu Steinunnar Jónsdóttur. Lagið er unnið af manni hennar Gnúsa Yones eins og þau fyrri en að þessu sinni fengu þau til liðs við sig félaga sína úr plötusnúðahópnum RVK Soundsystem og góða vini þeirra hjóna Arnljót Kraftgalla og Teit Magnússon. Hafaldan og Steini – Klára það seinna í dag Lagið Klára það seinna er frumburður listamannanna Þorsteins Inga Júlíussonar sem kallar sig Steina og Hálfdáns Arons Hilmarssonar sem kallar sig Hafölduna. Lagið segja þeir Hafaldan og Steini að fjalli um að takast á við vandamálin sem frestunarárátta getur valdið með notkun á grípandi laglínu og takti sem fær fólk til að hækka í græjunum. dóttir.x – pixel heart Krista Hrönn Héðinsdóttir kallar sig dóttir.x og er frá Ólafsvík en flutti til Bandaríkjanna fyrir nokkrum árum og býr nú í Los Angeles. Hún semur á íslensku og ensku og blandar saman draumkenndu poppi, rafrænum hljóðheimum og UK garage-áhrifum. Lagið pixel heart er af plötunni darling, darling sem kemur út 26. júní. Maron Birnir, Friðrik Dór – Hugsa skýrt Maron Birnir hefur verið að gera það gott í íslensku senunni undanfarið ár þrátt fyrir ungan aldur. Hans nýjasta er lagið Hugsa skýrt sem hann gerði með Tryggva Þór og Kristjáni Saenz. Hann fékk Friðrik Dór til að syngja með sér í laginu sem hefur gert það gott á streymisveitunni stóru. Sú Ellen – Langir dagar Hljómsveitin Sú Ellen hefur sent frá sér lagið Langir dagar sem fjallar um heimþrá og er eftir þá Steinar Gunnarsson og Guðmund Rafnkel Gíslason. Lagið er innblásið af áttunda og níunda áratug síðustu aldar og einhver nefndi Prefab Sprout en það er hægt að þræta fyrir það, segja þeir. Fræbbblarnir og Andrea Gylfadóttir – Stormur í blíðunni Hinir upprunalegu Kóp Boys eru Fræbbblarnir sem eru með Andreu Gylfa með sér í sínu nýjasta útspili. Það heitir Stormur í blíðunni og er af samnefndri plötu. Lagið er eftir Helga Briem, Ríkharð Helga Friðriksson og Valgarð Guðjónsson sem á líka textann. Undiraldan lagalisti

Share this article