Innlent | mbl | 2.5.2026 | 23:00 | Uppfært 23:19 Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mæðginin Halldór Smárason og Helga Friðriksdóttir sem skipst hafa á hundruðum tölvupósta um árabil. Þeir eru nú uppistaðan í tónverki. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Við Herdís Anna Jónasdóttir sópransöngkona höfum unnið saman áður og okkur langaði að vinna saman að ljóðaflokki, semja verk sem væri meira en eitt sönglag heldur flokkur af ljóðum sem við myndum flytja á tónleikum.“ Þetta segir Ísfirðingurinn Halldór Smárason, tón- og ljóðskáld, nú búsettur í Hveragerði, um tónleika þeirra Herdísar áðurnefndrar og Helgu Bryndísar Magnúsdóttur píanóleikara í Salnum í Kópavogi klukkan 13.30 á morgun, sunnudag, en ljóðaflokkur Halldórs verður að teljast frumlegur þar sem hann er byggður á tölvupóstsamskiptum skáldsins við móður sína, Helgu Friðriksdóttur, fyrir vestan. „Komið og hlustið á allt djúsí skúbbið sem mamma hefur sent mér í gegnum árin!!“ skrifar Halldór á Facebook-síðu sína og lofar þar með greinilega ýmsu á tónleikunum á morgun – og vonandi ekki öllu upp í ermina á sér, en hér skal taka fram að Halldór býður forspjall um tilurð verkanna sem hefst klukkan 13 svo hér er komið annað „djúsí skúbb“ en það sem hann talar um á Facebook, þegar mbl.is fær að lauma hluta forsögunnar út kvöldið fyrir tónleika. En bara hluta forsögunnar svo líklega er sniðugt að ná forspjallinu líka á morgun ætli lesendur að skella sér á ljóðatónleika með ekta ísfirskum anda. Hafa skrifast á um árabil „Ég fór að hugsa um að semja einhvers konar verk, hvað væri gaman að skrifa um. Oftar en ekki þegar ég hef samið fyrir söng hef ég bara vaðið í ljóðabækur sem ég hef fílað og fundið ný ljóðskáld og svo framvegis,“ útskýrir skáldið vestfirska og líklega því eftir miklu að slægjast þar sem skáld þessa landshluta hafa sjaldan verið aukvisar og nægir líklega að minnast á þá Stein Steinarr frá Laugalandi við Ísafjarðardjúp og trúarskáldið góða frá Skógum í Þorskafirði, séra Matthías Jochumsson. Í flóruna bætist nú tölvupóstskáldið frá Ísafirði en þau móðir hans, sem varð blind á fullorðinsárum, hafa átt í tölvupóstsamskiptum sem fylla myndu nokkurra binda verk væri ráðist í útgáfu bálksins. Halldór og Herdís Anna Jónasdóttir sópran eru ekki með öllu ókunnug og hafa birst saman á sviði áður. Ljósmynd/Grace Alexender „Við mamma höfum skrifast á í mörg mörg ár, eiginlega bara síðan ég flutti að vestan, ég flutti suður og fór í nám og fór svo til útlanda. Við mamma höfum alltaf verið mjög náin og átt í góðum samskiptum, bæði gegnum síma og tölvupóst. Hún hefur mjög einkennandi stíl og notar svolítið fornt málfar og konan mín var alltaf svo hrifin af þessum póstum og sagði mér að ég yrði að gera eitthvað við þetta annað en að hafa það bara í innboxinu mínu,“ segir Vestfirðingurinn frá. Blóðið til skyldunnar Honum rann því blóðið til skyldunnar enda tölvupóstarnir merkileg heimild um líf núverandi og brottfluttra Ísfirðinga, til dæmis tíðar vangaveltur þeirra mæðgina um hvort flogið yrði sem er eilífðarspurning á Ísafirði og auðvitað margt fleira. „Þannig að ég hófst handa og fann 973 tölvupósta frá 2010 til dagsins í dag og það var nú bara af því að ég náði ekki aftar í tíma í innboxinu mínu,“ segir Halldór frá. „Þarna var hellingur af efni og ég flokkaði þetta allt og skipti niður eftir árum og notaði svo elstu póstana, stokkaði þá upp til að forðast að hafa samhengi í þessu, tók allar setningar úr samhengi og passaði að hafa ekkert persónugreinanlegt efni,“ lýsir hann forvinnunni sem ætla má að hafi verið eljuverk hið mesta. „Svo bjó ég til fimm ljóð, valdi eina setningu héðan og eina þaðan og til urðu fimm ljóð með mismunandi inntaki, mjög brotakennd en líka innra samhengi í sumum þeirra. Þá var ég kominn með efni og gat byrjað að semja tónlistina,“ segir Halldór. Tónlistin er eftir þá Halldór og góðan vin hans, tónskáldið Finn Karlsson. Halldór og Finnur, tvö tónskáld með kaffimál. Ljósmynd/Aðsend Skrifstofustóllinn í íslenskri ljóðagerð „Að vera með nýtt efni er alltaf gaman, ég hef rætt þetta við marga í kringum mig og í þeim hópi eru rosalega margir sem hafa aldrei á ævinni sent eða móttekið tölvupóst frá mömmu sinni og finnst þetta eiginlega bara fáránlegt,“ segir Halldór og hlær við. „Þessir póstar snúast um hversdagslegar fréttir og alls konar smáatriði úr heimilislífinu og mikið hvort flogið verði, sem er mjög ísfirskt. Eitt ljóðið fjallar bara um forláta skrifstofustól sem mamma ætlaði að gefa pabba í jólagjöf og var alveg með á heilanum, póstarnir sem þessi ljóð eru byggð á eru frá árunum 2010 til 2012 og verkið er tileinkað henni, það væri ekki til án hennar – og ekki ég heldur ef út í það er farið,“ segir viðmælandinn sposkur og vekur almennan hlátur í tveggja manna símtali. „Þrátt fyrir blinduna er hún ótrúlega dugleg að skrifa póst og talgervill les fyrir hana póst frá mér en hún skrifar sinn póst bara á venjulegt lyklaborð og hefur verið ótrúlega seig að takast á við það áfall sem blindan var,“ segir skáldið og hrósar móður sinni í hástert. Svona líta tónskáld við iðju sína út...alla vega Halldór. Ljósmynd/Marco Giugliarelli Aldrei beinlínis væmin Halldór segir það mynda skemmtilega togstreitu að eiga í svo persónulegum samskiptum um svo ópersónulegan miðil sem tölvupóst. „Mamma segir samt aldrei „ég elska þig“ eða eitthvað svoleiðis í póstunum, hún er aldrei beinlínis væmin á þeim vettvangi en sýnir nándina og kærleikann gegnum þetta hversdagslega, segir að þau pabbi geti lagt inn á mig fyrir flugmiða og svo framvegis og það er skemmtilegt á sinn hátt,“ segir hann. Halldór er fullur spennu fyrir morgundaginn þótt hann sé líklega löngu kominn yfir að hafa sviðsskrekk eftir að hafa marga fjöruna sopið – eða kannski losnar maður aldrei alveg við sviðsskrekk. Vonandi ekki. Aðstandendur verksins frá vinstri: Herdís, Finnur, Halldór og Helga Bryndís. Ljósmynd/Aðsend Hér má lesa eitt þeirra ljóða Halldórs Smárasonar sem frumflutt verða í Salnum á morgun: I. Kveðja frá Ísafirði Sæll sonur minn. Lítið að frétta. Ekki er um mörg kvöld að ræða til samvista. Erum að fara í gönguferð þó að það sé nokkuð dimmt. Jæja elskan mín. Ég hef lítið sofið. Ég hef verið að hugsa til ykkar. Pabbi þinn var að yfirfæra á reikninginn þinn upphæðina. Ég gæti borgað miðann vestur fyrir þig. Góðan dag sonur minn. Gott að fá línurnar frá þér. Hér er heldur betur líf í húsinu. Við fljúgum með seinnipartsvélinni á miðvikudag. Ekkert flogið vestur í dag. Verðum í sambandi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Spáð í spilin fyrir tímamótafund Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Hurð nærri hælum Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Mest lesið Í gær Í vikunni Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Spáð í spilin fyrir tímamótafund Endurbætur á skólahúsnæði á oddinum Hurð nærri hælum Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Undarlegt að forsætisráðherra ráðist á Kópavog Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Halla himinlifandi eftir konunglegt afmæli Farfuglar koma fyrr til landsins Mest lesið Í gær Í vikunni Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Allt hvítt fyrir norðan: „Allir komnir á sumardekk“ Gísli Marteinn tjáir sig um innslag Jóns í Vikunni Jóni Gnarr og útvarpsstjóra ber ekki saman um greiðslu Bílarnir víkja fyrir reiðhjólum Þjónustan fyrir Sönnu verði farin þegar framkvæmdum ljúki Tvö ný útibú frá Góða hirðinum „Þetta getur ekki haldið svona áfram“ Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Herjólfur III verður klár í næstu viku Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Maðurinn fannst látinn við Háafoss Eins konar æði gripið Íslendinga Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás