Snemma á síðustu öld skaut upp kollinum víðitegund í Vesturbæ Reykjavíkur af svo miklum krafti að vexti hennar var líkt við lygasögu. Talið er að saga vesturbæjarvíðis (salix x smithiana) á Íslandi hafi hafist 1910 þegar Jón Eyvindsson, kaupmaður og garðunnandi, bjó að Stýrimannastíg 9. Hann pantaði haustlauka frá Þýskalandi og þeir bárust í tágakörfu sem var fléttuð úr víðiteinungum. Ísleifur sonur Jóns á að hafa tekið eftir því að líf var enn í sumum teinungunum. Hann setti einn niður og úr varð tré sem óx hratt og auðvelt var að fjölga. Tegundin var kölluð vesturbæjarvíðir en er í raun blendingur selju, körfuvíðis og líklegast gráselju. Þeir feðgar gáfu nágrönnum græðlinga og því er hægt að finna einn og einn vesturbæjarvíði á stangli. Tréð sem kom upp hjá Jóni á Stýrimannastígnum er þó löngu horfið. Bryndís Björgvinsdóttir, stjórnandi þáttarins Gull og grænir skógar á Rás 1, og Steinar Björgvinsson garðyrkjufræðingur fóru nýlega á Stýrimannastíg 9 með þrjú eintök af vesturbæjarvíði í potti, allt græðlinga sem teknir voru af tré í Fossvogskirkjugarði í fyrravor. Tréð brotnaði svo undan snjó í október. Talið er að allur vesturbæjarvíðir á landinu sé klón af þessu einu og sama tré sem óx að Stýrimannastíg í byrjun 20. aldar. Þar búa nú Ragna Árnadóttir og Magnús Björnsson sem þáðu með þökkum þennan afkomanda gamla sögufræga trésins sem eitt sinn stóð í garðinum þeirra. Þer hefur vesturbæjarvíðir því verið settur niður að nýju. Ragna og Magnús sáu upprunalega vesturbæjarvíðinn aldrei í garðinum en hann prýða samt mörg gömul, falleg tré. Þau þáðu græðling og komu honum fyrir í garðinum þaðan sem hann rekur uppruna sinn. „Hann er kominn heim,“ segir Magnús stoltur. Magnús og Ragna ákváðu að planta víðinum á besta og sýnilegasta stað í garðinum. Segja má að það marki upphaf þriðju kynslóðar vesturbæjarvíðis í Vesturbænum. Talið er að allur vesturbæjarvíðir á landinu sé klón af tré sem stóð við Stýrimannastíg 9. Bryndís Björgvinsdóttir fór þangað á dögunum ásamt Steinari Björgvinssyni með þrjú eintök af vesturbæjarvíði í potti. Nú má segja að víðirinn sé kominn heim. Síðasti þáttur Gulls og grænna skóga fjallar um Vesturbæjarvíðinn sem sneri aftur á Stýrimannastíg 9. Hægt er að hlýða á þáttinn, og fyrri þætti seríunnar, í spilaranum hér fyrir ofan.