Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vestmannaeyjatogarar með karfa og blandaðan afla

Read Full Article →

Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu báðir um helgina og í byrjun vikunnar. Að því er segir á vef Síldarvinnslunnar landaði Vestmannaey fullfermi af karfa í Grindavík á sunnudaginn og síðan blönduðum afla í Eyjum á mánudag. Bergey hafi landað fullfermi af blönduðum afla í Eyjum á þriðjudag. Veiddu karfann í Sparisjóðnum „Við veiddum karfann í Sparisjóðnum í Skerjadýpinu og þar fékkst stór og flottur karfi. Að lokinni löndun fórum við og tókum þrjú hol á Pétursey og Vík. Síðan var haldið til Eyja og landað þar 23 tonnum af blönduðum afla,” segir Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, á svn.is. Haft er eftir Ragnari Waage Pálmasyni, skipstjóra á Bergey, sagði að aflinn í veiðiferð þeirra hafi verið mjög blandaður. „Við kvörtum ekki“ „Þetta voru mest fjórar tegundir og var nánast jafnt af hverri þeirra. Þetta voru steinbítur, ufsi, ýsa og koli. Við hófum veiðar á Öræfagrunni en síðan var haldið á Mýragrunn, þaðan á Skerbleyðuna og loks á Pétursey og Vík. Veður var gott mest allan tímann en undir lokin jókst vindur og var 15 -18 metrar. Þetta var ágætur blandaður túr og við kvörtum ekki,” segir Ragnar Waage á vef Síldarvinnslunnar.

Share this article