Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stuttir túrar og örar landanir hjá Eyjatogurum

Read Full Article →

Ísfisktogarar Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa fiskað vel að undanförnu. Að því er segir á vef Síldarvinnslunnar hafa túrarnir verið stuttir og veðrið verið breytilegt. „Við lönduðum fullfermi af karfa í Grindavík þann 30. apríl og lönduðum þar aftur á sunnudag og þá var aflinn að mestu karfi en dálítil ýsa með. Í báðum túrum var veitt í Grindavíkurdýpinu þannig að það var stutt að fara. Í fyrri túrnum var haugabræla en fínt veður í þeim seinni,” segir Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, á vef Síldarvinnslunnar. Fullfermistúrar hjá Vestmannaey Þá segir að Bergey hafi haldið til veiða á ný í gærkvöldi með karfa á dagskránni. Vestmannaey hafi landað í Grindavík á sunnudaginn og landi þar á ný í dag. Í báðum túrum hafi verið fullfermi. „Við höfum verið að veiðum á Selvogsbankanum og aflinn hefur mest verið ýsa. Túrarnir hafa verið stuttir eða um það bil tveir dagar. Veðrið hefur verið tiltölulega gott en mér finnst þó vanta lofthitann, hiti vorsins lætur bíða eftir sér,” segir Egill Guðni Guðnason skipstjóri í samtali á svn.is .

Share this article