- What: ISÍ and the University of Iceland sign a cooperation agreement for athletes
- Impact: Athletes may benefit from better academic and sports support
Innlent | mbl | 18.6.2026 | 11:42 | Uppfært 16:02 Afreksíþróttafólk fær aukið svigrúm í námi Rektor og forseti ÍSÍ handsala samninginn. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Setja bókamerki Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, undirrituðu samstarfssamning fyrr í vikunni sem ætlað er að auðvelda afreksfólki að stunda nám við skólann samhliða afreksíþróttaiðkun, með það fyrir augum að hópurinn nái góðum árangri bæði í námi og á íþróttavellinum. Þetta kemur fram í tilkynningu. Samningurinn er gerður í framhaldi af stefnumótun stjórnvalda um bætta umgjörð fyrir afreksíþróttafólk á Íslandi. Auka nýsköpun og þekkingu á sviði íþrótta Í nýrri framtíðarstefnu stjórnvalda er lögð áhersla á að styrkja þurfi samstarf ÍSÍ og háskólasamfélagsins, meðal annars með því að samþætta betur nám og afreksíþróttaferil, framkvæma reglulegar afkastagetumælingar meðal afreksíþróttafólks og auka nýsköpun og þekkingu á sviði íþrótta. Meðal þeirra sem komið hafa að stefnumótun stjórnvalda eru Erlingur Jóhannsson, prófessor í íþrótta- og heilsufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, og Kristín Birna Ólafsdóttir, afreksstjóri ÍSÍ. Fulltrúar HÍ og ÍSÍ við undirritunina. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Skólinn leitar leiða til að veita sveigjanleika Samningurinn er sagður marka tímamót. Hann kveði meðal annars á um að sérsambönd ÍSÍ skilgreini þann hóp afreksíþróttafólks sem þurfi á sveigjanleika í námi að halda vegna afreksíþróttaiðkunar sinnar í samvinnu við Afreksmiðstöð Íslands (AMÍ) og upplýsi HÍ um hverjir tilheyri hópnum. Samkvæmt samningnum ber því afreksíþróttafólki sem þarf á auknum sveigjanleika að halda í námi jafnframt að framvísa skriflegri staðfestingu frá ÍSÍ um að það tilheyri afrekshópi sambandsins. Auk þess þarf afreksfólkið að upplýsa formann sinnar námsbrautar og umsjónarkennara í þeim námskeiðum sem það sækir um þörf fyrir sveigjanleika í námi strax í upphafi kennslumisseris. Háskóli Íslands mun samkvæmt samningnum leita leiða til að veita afreksíþróttafólkinu sveigjanleika varðandi tímasókn, tímasetningu verkefnaskila og prófa og möguleika á að stunda hlutanám vegna æfinga, æfingabúða eða keppni á stórmótum eins og Evrópu- og heimsmeistaramótum og á Ólympíuleikum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Tuchel sýnilega pirraður á skipulagi FIFA Bandaríkin leggja Bólivíu lið Video: Reckless overtaking maneuver nearly causes crash Tékkland - Suður-Afríka , staðan er 1:0 Sagði hegðun bandamanna skammarlega Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aflýstu 17. júní vegna veðurs Minni skortur en í ESB Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Ný lög um íslenska fánann auka söluna Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Aflýstu 17. júní vegna veðurs Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Tuchel sýnilega pirraður á skipulagi FIFA Bandaríkin leggja Bólivíu lið Video: Reckless overtaking maneuver nearly causes crash Tékkland - Suður-Afríka , staðan er 1:0 Sagði hegðun bandamanna skammarlega Umræðan Vextir, verð og húsnæðisvandinn Aðgerðaleysi eykur líkur á að kjarasamningum verði sagt upp Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Var háð foreldrum sínum og vildi ekki flytja út Mest lesið Í gær Í vikunni Lögreglan um framúraksturinn: „Hvorki staður né stund“ Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Hundraða þúsunda kostnaður á íbúa Margrét Helga Jóhannsdóttir látin Dóttirin reyndi sennilega að losa sig Ráðuneytið auglýsti loks stöðuna Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Aflýstu 17. júní vegna veðurs Auglýsingatími lengist og aukin aðsókn í óverðtryggð lán Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Aflýstu 17. júní vegna veðurs Slagsmál brutust út á milli ökumanna Valdimar lætur af störfum Fjórtán sæmdir íslensku fálkaorðunni Evrópusambandið bar mútur á íslenska ríkið Einn fær 20 milljónir Óskar Íslandi til hamingju með daginn Ráðherra sagður stefna að innleiðingu Íslenski rabarbarinn varla notaður á Íslandi Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Réðst á dreng í sundi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Aflýstu 17. júní vegna veðurs Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna Fátíður en sláandi atburður Óttast er að hundruð missi vinnuna Stungu af með kranabíl Meirapróf til að aka strumpastrætó