Hlutabréfaverð hækkaði og olíuverð lækkaði aftur í gær eftir að stjórnvöld í Íran sögðu samningafundi við Bandaríkjamenn um kjarnorkusamning hafa lokið á jákvæðum nótum. Íran er umsvifamikill framleiðandi hráolíu. Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, sagði að viðræðum loknum þær hafa verið uppbyggilegri en áður og að samkomulag hefði náðst um almennar meginreglur. Hann kvaðst vongóður um að áframhaldandi viðræður leiði til varanlegrar lausnar. Olíuverð hækkaði eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði Íran hernaðaraðgerðum. Tunna af West Texas Intermediate hráolíu lækkaði um tæpt prósent eftir að hafa hækkað um eitt og hálft og Brent Norðursjávarolíutunna lækkaði um 1,8 af hundraði. Tunnan kostaði 67,42 bandaríkjadali undir lok dags í gær. Vangaveltur hafa verið uppi um að Íranir samþykki að útþynna auðgaðasta úranið gegn því að Bandaríkin aflétti öllum viðskiptaþvingunum. Ekki er þó ljóst hvort það dugi til að landa samningi, hefur AFP-fréttaveitan eftir Aarin Chiekrie, greinanda hjá Hargreaves Lansdown.