Suður-Afríka og Tékkar gerðu 1-1 jafntefli í nokkuð bragðdaufum leik. Tékkar komust yfir snemma leiks en eftir það eignuðu Suður-Afríkumenn sér boltann. Undir blálok leiksins kom ein skemmtilegasta sókn leiksins frá Suður-Afríkumönnum. Þar fengum við smá kasi flava, eða bragð svartrahverfisins (e. township flavour). Þetta er hugmyndafræði þar sem fótboltamenn sýna listir sínar og brellur, en ekki endilega til þess að vinna fótboltaleiki. Þetta er fyrst og fremst til að kæta áhorfendur. Township vísar í hverfi Suður-Afríku á apartheid tímabilinu. Sú sókn var skemmtilegri en allur leikurinn til samans þangað til. En Tékkar komust fyrir boltann og dómarinn flautaði til leiksloka. Hér má sjá eitt frægasta tilvikið af Kasi flava á síðustu árum. Tékkar og Suður-Afríkumenn gerðu 1-1 jafntefli í nokkuð bragðdaufum leik. Suður-Afríkumenn voru mikið með boltann og náðu að sýna takta undir lokin. Gangur leiksins Tékkar byrjuðu af miklum krafti og komust snemma yfir með marki Sadilek á 6. mínútu. Markið kom í kjölfarið á löngu innkasti Coufal. Eftir það virtist eins og þeir ætluðu bara að hlamma sér aftur og verja mark sitt. Suður-Afríkumenn héldu boltanum það sem eftir var en sköpuðu sér engin opin færi. Skot Maseko fórsvo í hönd Sulc og Tori Penso, dómari leiksins, benti á punktinn. Mokoena var öryggið uppmálað á punktinum og jafnaði metin á 83. mínútu. Hér má sjá mörkin Tékkar og Suður-Afríkumenn gerðu 1-1 jafntefli í nokkuð bragðdaufum leik. Suður-Afríkumenn voru mikið með boltann og náðu að sýna takta undir lokin. Stig gefur lítið í hönd Stig gefur stigunum lítið þar sem þau máttu þola tap í fyrstu umferð. Nú stefna þau í algjöran úrslitaleik um að komast áfram í 32-liða úrslit í lokaleikjum sínum í riðlinum. Tékkar mæta Mexíkó og Suður-Afríka mætir Suður-Kóreu. Mexíkó – Suður-Kórea í annari umferð er í kvöld klukkan 01:00.